Fólk sem býr við viðvarandi hljóðmengun frá umferð er líklegra til að þróa með sér parkinsonsjúkdóm. Þetta eru niðurstöður danskrar rannsóknar, þeirrar stærstu sinnar tegundar.
Parkinson hefur áhrif á taugafrumur sem stjórna hreyfingum og er næstalgengasti taugahrörnunarsjúkdómur í heimi. Eldri rannsóknir hafa bent til mögulegra tengsla milli parkinsons og hljóðmengunar.
Danska rannsóknin náði alls til þriggja milljóna þátttakenda yfir 17 ára tímabil. Alls þróuðu ríflega 20 þúsund þátttakendur með sér parkinsonsjúkdóminn á rannsóknartímabilinu.
Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar jókst áhættan á parkinsonsjúkdómi um 3% fyrir hver 11,5 desíbel af hljóðstyrk á heimili þátttakendanna. Það dró hins vegar úr áhættu ef þeir höfðu aðgengi að rýmum þar sem hljóðvist var betri, svo sem í herbergjum sem sneru undan stórum umferðargötum. Þeir sem höfðu ekki aðgengi að hljóðlátari rýmum áttu í mestri hættu á að þróa með sér sjúkdóminn.
Höfundar rannsóknarinnar telja að hljóðmengun auki líkurnar á parkinson vegna svefntruflana og streituviðbragða í líkamanum.