Inga var að svara fyrirspurnum Höllu Hrundar Logadóttur, úr Framsóknarflokknum, um fjármagn til framhaldsskóla á Suðurnesjum þegar henni vafðist tunga um tönn.„Ég á hundrað ára afmæli sem ráðherra í dag og hef í rauninni lagt nótt við dag til þess nákvæmlega að flýta öllum þessum verkferlum,“ sagði Inga og hélt áfram, þó ummælin hefðu klárlega leitt til hláturs í salnum og augngota.Það var ekki fyrr en sessunautar hennar fóru að hlægja eftir að hún lauk máli sínu sem Inga áttaði sig á mistökunum.„Viljið þið gjöra svo vel að laga þetta,“ sagði Inga.
„Ég er ekki hundrað ára.“
Ummælin má sjá í spilaranum hér að neðan. Finna má lengri útgáfu hér á vef Alþingis.