Hjónin hvergi sjáanleg en skuldin stendur eftir

Húsfélag í Reykjavík hefur höfðað mál gegn hjónum vegna ógreiddra húsfélags- og framkvæmdagjalda að fjárhæð 282.652 krónur. Stefna í málinu var birt í Lögbirtingablaðinu.
Samkvæmt stefnunni er skuldin tilkomin vegna ógreiddra gjalda fyrir tímabilið frá febrúar til og með júlí á þessu ári. Gjöldin tengjast fasteign í Reykjavík sem er í eigu hjónanna.
Húsfélagið krefst þess að hjónin verði dæmd sameiginlega til að greiða skuldina ásamt dráttarvöxtum og málskostnaði. Í stefnunni kemur fram að innheimtutilraunir hafi ekki borið árangur og því hafi reynst nauðsynlegt að höfða mál vegna skuldarinnar.
Hjónin eru samkvæmt Þjóðskrá með skráð lögheimili í Bandaríkjunum en heimilisfang þeirra þar er óþekkt. Fram kemur að ítarlegar tilraunir hafi verið gerðar til að hafa uppi á þeim svo hægt væri að birta stefnuna með hefðbundnum hætti. Sú leit hafi hins vegar ekki borið árangur.
Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur 29. október næstkomandi.