Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að Reykjavíkurborg muni ekki sætta sig við að veggjöld verði innheimt af almennri umferð á núverandi stofnvegum borgarinnar.Hún útilokar þó ekki veggjöld á nýjum samgöngumannvirkjum, til dæmis göngum undir Miklubraut eða Sundabraut. Hildur segir borgina tilbúna að sýna ríkinu mikla mótspyrnu ef áform um gjaldtöku á eldri vegum verða að veruleika.
Hildur tjáir sig um umdeild veggjöld á höfuðborgarsvæðinu