Henry Nowak lést í handjárnum lögreglu sem trúði morðingjanum – mikil reiði grípur um sig í Bretlandi

Morðið á háskólanemanum Henry Nowak 18 ára, hefur vakið vaxandi reiði eftir að upplýsingar leiddu í ljós að unglingurinn var handjárnaður af lögreglu etir að hann hlaut banvæn stungusár, lögreglumennirnir trúðu upphaflega fullyrðingum morðingjans.
Nowak leitaði strax til lögreglu eftir stunguárásina sem handtók hann og sagði hann lögreglumönnum ítrekað „ég get ekki andað." Nowak lést svo í handjárnum eftir árásina samkvæmt myndbandi úr búkmyndavél lögreglu.
Morðinginn Vickrum Digwa, 23 ára, laug að lögreglunni á vettvangi um stungusárásina og hélt því fram að hann hefði orðið fyrir kynþáttafordómum.
Myndband sem lögreglan birti, með leyfi fjölskyldu Nowaks, sýnir Nowak grátbiðja lögreglumennina og segist hafa verið stunginn, lögreglumaður svarar „ég held ekki að þú hafir orðið fyrir því, félagi“.
Nowak hlaut stungusár á fótleggjum og banasár á hjarta eftir 21 cm (8 tommu) blað sem Digwa sagðist hafa borið sem hluta af múslimatrú sinni. Hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi, með lágmark refsingu í 21 ár.
Óháða skrifstofan sem rannsakar lögregluhegðun og brot (IOPC) segir að rannsókn á aðgerðum lögreglunnar væru hafnar.
Í ræðu sinni fyrr í neðri deild breska þingsins afhjúpaði innanríkisráðherrann, Shabana Mahmood, að lögreglumaður, sem ekki tengdist málinu, hefði verið auðkenndur fyrir mistök og neyddur til að flytja til að vernda sig og fjölskylduna.
Skrifstofa ríkissaksóknara er einnig að íhuga fangelsisdóminn sem Digwa var dæmdur í eftir að hafa fengið „margar beiðnir“ um að endurskoða hann samkvæmt kerfinu um óeðlilega vægar refsingar (ULS).
Meðferð lögreglunnar „ómannúðleg og niðurlægjandi“
Fjölskylda Nowaks, frá Chafford Hundred í Essex, kallaði meðferð lögreglunnar á honum „ómannúðlega og niðurlægjandi“ og hefur lögreglan beðist afsökunar.
Faðir hans, Mark, sagði: „Henry sagði lögreglumönnum að hann gæti ekki andað níu sinnum. Hann sagði þeim að hann hefði verið stunginn fjórum sinnum. Henry var dreginn yfir mölina, hendur hans þvingaðar fyrir aftan bak og hann var settur í handjárn.“
Hann sagði að munurinn á því hvernig sonur hans og Digwa hefðu verið meðhöndlaðir væri „óbærilegur“.
„Henry hefði ekki átt að deyja á götum Southampton í haldi lögreglu,“ bætti hann við.
Á myndbandinu má heyra lögreglumann koma á vettvang spyrja: „Hvað heitirðu, félagi?“
Nowak, sem liggur á bakinu á jörðinni, svarar dauflega: „Henry.“
Þegar myndbandið heldur áfram stígur Digwa inn í myndina. Hann heldur því fram að Nowak hafi tekið af sér túrbaninn og gripið í hárið á honum.
Lögreglumaðurinn spyr Digwa hvort hann sé slasaður, sem Digwa svarar: „Já, já, ég er með bólgið auga hérna, lítinn marblett hérna.“
Lögreglumenn snúa sér þá að Nowak, sem heyrist endurtaka „ég hef verið stunginn“ og svo „ég get ekki andað“ á meðan hann er látinn setjast upp til að vera handjárnaður.
Stuttu síðar lést Nowak í handjárnunum.
Ítarlegri umfjöllun má lesa á BBC.