„Hélt ég myndi aldrei upp­lifa ást sem þessa“ - Vísir

„Hélt ég myndi aldrei upp­lifa ást sem þessa“ - Vísir

„Hélt ég myndi aldrei upp­lifa ást sem þessa“ - Vísir

Guðný er fædd árið 1984, alin upp á Akureyri og hefur lifað lífi sem einkennist af bæði hæðum og lægðum. Hún er grunnskólakennari og hefur löngum verið hjá Samfylkingunni, nú sem varabæjarfulltrúi í Mosfellsbæ. 

Falleg fjölskylda, fyrir miðju brúðhjóninVignir Hreinsson og Guðný Maja Riba ásamt sonunum Gunnari, Ísaki Mána, Aroni Logi og Óla Pedro.Blik Studio

Guðný hefur á ferli sínum barist fyrir ýmsum málefnum og þar á meðal opnað sig á eigin reynslu um ofbeldi í nánu sambandi. Eftir gríðarlega erfitt tímabil bankaði ástin upp á og er hún ástfangin upp fyrir haus af athafnamanninum Vigni Hreinssyni.

Sýndi henni hvað sönn ást og virðing er

„Ég bý yfir þeim einstökum hæfileikum að hafa jákvæða sýn á lífið og treysta því að allt verði einhvern tíma gott, en ég hélt þó að ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa. Enda hafði ég aldrei upplifað slíkt á mínum 42 árum,“ segir Guðný.  Þegar hún og Vignir kynntust hafi hún hugsað með sér: Er þetta í alvörunni eitthvað sem ég á skilið?

„Eftir mörg erfið ár hafði ég loksins fengið að kynnast manni sem sýndi mér raunverulega hvað sönn ást er og hvað virðing er. Ég er mjög opin með það ofbeldi sem ég hef orðið fyrir og fyrir þremur árum þá var ég í Kvennaathvarfinu.

Ég veit að ég hef mikið fram á að færa, ég var borgarfulltrúi í fjögur ár, var í velferðarráði, hef komið víða við og gert alls konar hluti og ég veit að ég hef mikið fram á að færa. En þarna var ég greinilega ekki að meta sjálfa mig nógu mikið og var alltaf að sætta mig við eitthvað sem er auðvitað ekki eðlilegt. Ég þekkti raunverulega ekkert annað fyrr en ég kynntist Vigni.“

Guðný fann sanna ást í fyrsta sinn þegar hún kynntist Vigni.Blik Studio

„Nú elska ég að láta elska mig“

Hún segir að það hefði líklega verið auðvelt að vilja halda sig frá karlmönnum eftir það sem hún gekk í gegnum.

„Ég er þó frekar opin og ég elska að elska. Núna elska ég að láta elska mig. Þetta er svolítið skrýtin breyting,“ segir Guðný brosandi og bersýnilega ástfangin upp fyrir haus. Síðastliðin ár hefur hún unnið sig í gegnum áföllin og myndað fallegt samband við sjálfa sig.

„Í fyrstu var ég að reyna að átta mig á því hvort þessi ást væri raunveruleg og hvort eitthvað slæmt væri að fara að gerast, en svo gerist það aldrei. Það er alltaf virðing og samtöl. 

Mér fannst líka gott að átta mig á því að ég átti þetta ekki skilið, ég var ekki skemmd vara. Það á engin manneskja skilið að láta beita sig ofbeldi. 

Ég lærði líka að áfallið sem ég lenti í var ekki mér sjálfri að kenna. Það hjálpaði að skilja það með sanna ást sér við hlið, sem þreytist ekki á að segja mér að ég eigi heiminn skilið. Þannig er Vignir við mig.“

Betra að spyrja en álykta

Guðný segist hafa verið ákveðin í því að segja frá þessari ástarsögu í von um að veita öðrum styrk.

„Ég hugsaði ef ég næ einhvern tíma svona brúðkaupsdegi þá fer ég með það í fjölmiðla. Bara til að sýna fólki að þetta sé hægt. Ég hef talað opinberlega um mín áföll, meðal annars á stórum ráðstefnum fyrir lögregluna, barnavernd, félagsráðgjafa og landspítalann. 

Ég sem þolandi hef talað um kerfið og hvað má gera betur. Mig langaði líka að sýna öllum sem eru að vinna sig í gegnum svona erfiða reynslu að það sé eitthvað annað sem getur tekið við.“

Besti dagur lífs Guðnýjar var brúðkaupsdagurinn.Blik Studio

Guðný segist aldrei hafa blómstrað eins mikið í lífinu og undanfarið.

„Ég hef líka oft fundið fyrir skrýtnum fordómum, svona hvernig getur menntuð kona í svona góðri stöðu lent í þessum aðstæðum. Það er enn eitthvað sem ég finn fyrir. Þegar ég var á fyrsta ári í borgarstjórn var ég með manni sem bannaði mér að fara í vinnuna. Svo eru svo margir sem spyrja ekki og álykta eitthvað. 

Mér finnst mikilvægt að fólk viti að það er svo margt sem getur verið í gangi og líka að það hætti að líta undan og vilja ekki spyrja. Ég á mörgu góðu fólki svo margt að þakka. Helgu Laxdal, Heiðu Björgu fyrrum borgarstjóra, Liv Magneudóttur og ótal fleiri sem tóku vel utan um mig og það var alveg ómetanlegt að fagna brúðkaupsdeginum með mínu nánasta fólki.“

Ómetanlegt að sonurinn leiddi hana inn

Brúðkaupsdagur Guðnýjar og Vignis var draumi líkastur og munu brúðhjónin aldrei gleyma ástinni sem einkenndi daginn.

Mægðinin Óli Pedro og Guðný Maja Riba.Blik Studio

„Ég á fjórtán ára yndislegan strák sem leiddi mig inn kirkjugólfið. Við eigum ótrúlega fallegt samband, elskum hvort annað meira en sólina. Hann hefur þurft að sjá mömmu sína í hræðilegum aðstæðum og það að fá mömmu sína svona til baka hefur verið rosalega verðmætt fyrir hann. 

Það er svo stutt síðan lífið okkar var allt öðruvísi og núna erum við mæðginin á svo góðum, fallegum og öruggum stað. 

Það var ekki þurr þráður á einum einasta gest þegar við gengum inn kirkjugólfið. 

Þetta var svo góður dagur að ég væri sko til í að gera þetta aftur á morgun,“ segir Guðný kímin.

Óvænt trúlofun í Dublin

Hjúin trúlofuðu sig í nóvember 2024 þegar þau fóru í helgarferð til Dublin en Guðný segir að Vignir sé einstaklega duglegur að fara með hana í ferðalög.

„Hann var alltaf að segja að við yrðum að skoða einhverja tiltekna kirkju en svo gat hann ekki hamið sig og fór á skeljarnar á hótelherberginu. Þetta var svo falleg stund og við höfum frá upphafi séð hvort annað svo vel. Ég sagði auðvitað strax já, það kom ekkert annað til greina.“

Guðný þurfti ekki að hugsa sig um tvisvar þegar Vignir bað hana að giftast sér.Blik Studio

Hjónin eru ólík að sögn Guðnýjar og Vignir minna fyrir athyglina.

„Hann vildi gefa mér mitt draumabrúðkaup, hann fer svolítið alla leið með hlutina og það tókst svo sannarlega og meira til. Við fengum ómetanlega hjálp frá viðburðaskrifstofunni Stikkfrí því ég er með svolítið ADHD. 

Ég var samt búin að gera heilmikið og heyra í alls konar sölum og kirkjum. Við enduðum á að gifta okkur í Háteigskirkju og veislan var í Fantasíu salnum á Kjarval.“

Sérsaumaður kjóll og míní Kóteletta

Guðný hafði fastar skoðanir á brúðarkjólnum en svo endaði hann á því að fara í allt aðra átt.

„Ég fékk Sigríði Erlu Einarsdóttur kjólameistara til að hanna á mig kjól og hún er æðisleg, algjör fagmaður og fagurkeri. Við fórum saman að velja efni og kjóllinn var svo sérsaumaður eftir mínu höfði.“

Aron Can var meðal listamanna sem trylltu lýðinn í teitinu.Blik Studio

Kvöldið einkenndist svo af gríðarlegri gleði.

„Það var mikið um fallegar ræður og það var ótrúlega verðmætt að heyra það. Páll Rósenkranz, Regína Ósk og Svenni sungu í kirkjunni og um kvöldið tróðu Sigga Beinteins, Páll Óskar, Emmsjé Gauti og Aron Can upp. Þetta var svona míní Kótelettan bara, segir Guðný hlæjandi.

Stelpurnar í Stikkfrí vinna með svo mörgum fagmönnum og benda þér á alls konar gott fólk til að vinna með. Þær bentu okkur meðal annars á frábæran ljósmyndara og ef það er eitthvað sem þið ætlið að eyða í þegar það kemur að brúðkaupi þá mæli ég með góðum ljósmyndara. 

Daniel og Kim hjá Blik studio tóku myndirnar og fylgdu okkur í gegnum daginn. Ég og vinkonur mínar gerðum okkur til í MakeUp stúdíói Hörpu Kára og Vignir og strákarnir voru heima hjá okkur. Það er svo verðmætt að eiga öll þessi fallegu augnablik á filmu.“

Einkanúmerið „Nýgift“

Það er stæll á Guðnýju og Vigni en brúðarbíllinn var gamall, blár BMW og fengu þau sér einkanúmerið Nýgift.

„Ég byrjaði daginn með bestu vinkonum mínum þar sem við rifjuðum upp skemmtilegar minningar og gæddum okkur á kampavíni og snittum. 

Ég ólst upp ein hjá pabba mínum sem var læknir og vann mikið. Vinkonur mínar eru fjölskyldan mín líka, ég var meira heima hjá þeim en mér þegar ég var lítil þannig ég bauð nokkrum foreldrapörum vinkvenna minna líka.“

Einkanúmerið Nýgift.Blik Studio

Gleymdu stað og stund í kossinum

Áður en hún mætti í kirkjuna rúntaði Guðný með Steinunni vinkonu sinni á BMW-inum og þær kíktu á sérstakan BMW hitting.

„Við höfum prakkarast mikið saman og ákváðum að rúlla við í BMW-hittingi fyrir utan HR. Við hækkuðum græjurnar í botn og ég veifaði brúðarvendinum út um gluggann við mikinn fögnuð,“ segir Guðný hlæjandi og bætir við: 

„Þetta var rosalega gott adrenalín-kikk fyrir athöfn, spennan lak aðeins úr manni eftir þetta. Ég viðurkenni að ég var svolítið stressuð en svo þegar ég var mætt var ég bara í gleðivímu.“

Gleðivíma eftir athöfn.Blik Studio

Tónlistin var einstaklega falleg í kirkjunni og í lok athafnar sungu allir gestir saman lagið Yellow með bresku sveitinni Coldplay.

„Þá var allt stressið algjörlega farið úr mér og ég naut mín í botn,“ segir Guðný glöð í bragði. 

Mörg hjón æfa kossinn fyrir athöfnina og segir Guðný að hún og Vignir hafi í gríni auðvitað haft stífar æfingar heima.

„Við vorum alltaf bara hvernig viljum við hafa þetta! Svo gleymir maður auðvitað stund og stað í innilegum og fallegum kossi. Þegar við gengum út kirkjugólfið ómaði lagið Hold on, we’re going home og gleðin réði ríkjum.“

Stórglæsileg brúður.Blik Studio

Með vasaklút föður síns

Guðný og faðir hennar voru alla tíð mjög náin en hann féll frá árið 2017 og það var sárt að hafa hann ekki með á þessum stóra degi.

„Þegar ég var að græja mig um morguninn var ég í blárri gallaskyrtu frá honum, sem hann var alltaf í. Hann var meira að segja enn með vasaklút í vasanum, sem ég var með í brúðkaupinu. Það voru svo margir sem minntust á pabba í ræðunum og Steinunn vinkona varpaði upp mynd af honum einmitt í þessari skyrtu, sem var ofboðslega verðmætt.“

Veislan var svo hin allra glæsilegasta þar sem tólf lítra Moët kampavínsflaska beið gesta og Tríóið Fjarkar byrjaði kvöldið með ljúfri tónlist. Rikki G veislustýrði og bakarinn Gulli Arnar bakaði gamaldags rjómatertu.

„Fyrir klukkan níu var fólk farið að dansa uppi á borði og fólk er á því að þetta hafi mögulega verið besta partý í manna minnum,“ segir Guðný geislandi.

Ástin og gleðin réðu ríkjum í veislunni.Blik Studio

Slík ást ekki sjálfgefin

Hún viðurkennir að það er svolítið erfitt að lenda eftir slíkan gleðidag.

„Já, það er svolítil tómleikatilfinning að vera ekki lengur að plana og bíða spenntur eftir þessu. Vignir vildi gefa mér brúðkaupið sem mig langaði í og sem honum fannst ég eiga skilið og þetta var bara ein stór gleðivíma. Það sást langar leiðir að hann var að gera þetta fyrir mig og ég er svo ofboðslega þakklát. Allt var fullkomið, hvert einasta smáatriði small fullkomlega. Ástin tók yfir og gleðin var ólýsanleg.

Vigni tekst alltaf að minna mig á hver ég er og hvar ég er í dag. Hvað ég hef komist í gegnum. Ég ætla ekki að láta það sem hefur komið fyrir mig skilgreina mig, ég ætla að halda áfram og sýna öðrum að það er hægt.

Þetta var hræðilegt og markaði mig og son minn að einhverju leyti fyrir lífstíð en í dag er það öryggi og fegurð sem einkennir líf okkar. Fyrir mig var þetta brúðkaup tákn um nýtt upphaf, von og þá staðreynd að sönn og heilbrigð ást er til.“

Hjónin skera fallegu rjómakökuna.Blik Studio

Vignir stendur svo þétt við bakið á Guðnýju að hún segir að hann hafi sem tæmi orðið töluvert tapsárari en hún sjálf í kosningunum í vor. 

„Í allri kosningabaráttunni var hann bara að hvetja mig áfram og segja mér að gera allt sem ég þurfti að gera. Hann er bara alltaf til staðar og ég á svo sannarlega auðvelt með að muna að svona ást er ekki sjálfgefin,“ segir Guðný kraftmikil og hamingjusöm að lokum.

Guðný og Vignir ganga inn í framtíðina full tilhlökkunar.Blik Studio
#aldrei #hélt #myndi #upplifa #ást


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262914109d/-helt-eg-myndi-aldrei-upp-lifa-ast-sem-thessa-

📰 Aðrar fréttir

Þúsund ára mynt seld á 2,5 milljónir íslenskra króna
📅 28.10.2026 👁️ 1
Þúsund ára mynt seld á 2,5 milljónir íslenskra króna
Þúsund ára gömul mynt frá tíma danska konungsins Sveins tjúguskeggs, sonar Haraldar blátannar, var seld á uppboði á þriðjudag fyrir 18.300 evrur, eða ...
Luxury cruise passengers stranded in Cambodia due to soaring fuel costs
📅 28.10.2026 👁️ 1
Luxury cruise passengers stranded in Cambodia due to soaring fuel costs
The Villa Vie Odyssey suspends its voyage and is working with passengers on "temporary living arrangements".
Neil Young sues Trump for playing Rockin' in the Free World at a rally without a licence
📅 28.10.2026 👁️ 1
Neil Young sues Trump for playing Rockin' in the Free World at a rally without a licence
The Canadian-American musician sued Trump in 2020 over unauthorised use of song at a political event.
100 þúsund flýja undan fellibylnum Arnab
📅 28.10.2026 👁️ 2
100 þúsund flýja undan fellibylnum Arnab
Hátt í 100 þúsund manns hafa neyðst til að flýja heimili sín á suðausturströnd Indlands eftir að hitabeltisfellibylurinn Arnab kom að landi í dag. Fel...
Israeli exit polls suggest no clear winner in pivotal general election
📅 28.10.2026 👁️ 2
Israeli exit polls suggest no clear winner in pivotal general election
Two polls project that veteran PM Benjamin Netanyahu and former military chief Gadi Eisenkot are tied, with neither winning a majority.
Flávio Bolsonaro flúinn til Bandaríkjanna
📅 28.10.2026 👁️ 1
Flávio Bolsonaro flúinn til Bandaríkjanna
Forsetaframbjóðandinn Flávio Bolsonaro, sem laut í lægra haldi í forsetakosningunum sem haldnar voru í Brasilíu á sunnudaginn, hefur flúið land.Bolson...
UK weather: Fog and mist to create dangerous driving conditions
📅 28.10.2026 👁️ 1
UK weather: Fog and mist to create dangerous driving conditions
After storms across the UK, the weather is set to turn calmer with mist and fog at times over the coming week.
The maths bust-up fuelling fears that AI is undermining science
📅 28.10.2026 👁️ 3
The maths bust-up fuelling fears that AI is undermining science
AI has made some awesome scientific discoveries. But now, questions are being raised about its accuracy
'No clear winner' in Israel election - what happens now?
📅 28.10.2026 👁️ 1
'No clear winner' in Israel election - what happens now?
Polls have closed in the Israeli election, but there is no clear winner.
Ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir
„Það er ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. „Það er...
Tekur við Bolsonaro opnum örmum - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Tekur við Bolsonaro opnum örmum - Vísir
Bolsonaro hefur enn ekki formlega játað ósigur í kosningunum sem fóru fram um helgina. Flokkur hans, Frjálslyndisflokkurinn, hefur þó viðurkennt sigur...
Munda fall­byssurnar við landa­mærin - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Munda fall­byssurnar við landa­mærin - Vísir
Á eina fallbyssuna eru skilaboð sem hafa verið þýdd sem: „Gereyðið bandarísku heimsvaldasinnunum, svornum óvinum kóresku þjóðarinnar.“ Talið er að Nor...
Féll fyrir gullfallegum förðunarfræðingi en endaði óvart með að þvætta pening fyrir alþjóðleg glæpasamtök
📅 27.10.2026 👁️ 3
Féll fyrir gullfallegum förðunarfræðingi en endaði óvart með að þvætta pening fyrir alþjóðleg glæpasamtök
Texasmaðurinn Garrick Stafford hafði varið heilu sumri í að skiptast á skilaboðum við dömu sem hann kynntist á netinu, rauðhærðan förðunarfræðing að n...
Guðmundur Andri ósáttur við partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
📅 27.10.2026 👁️ 3
Guðmundur Andri ósáttur við partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, er á meðal þeirra sem leggjast gegn óbreyttri starfsemi veislusalarins Hlöðunnar á...
Skildi fjögur börn ein eftir heima og fór til Las Vegas – Eitt barnið slasaðist á höfði
📅 27.10.2026 👁️ 3
Skildi fjögur börn ein eftir heima og fór til Las Vegas – Eitt barnið slasaðist á höfði
Fimmtug kona í Flórída fylki í Bandaríkjunum hefur verið handtekin fyrir alvarlega vanrækslu fjögurra barna sinna. Skildi hún þau ein eftir heima á me...
Sendiherra Kúbu segir hert viðskiptabann vera þögult stríð
📅 27.10.2026 👁️ 3
Sendiherra Kúbu segir hert viðskiptabann vera þögult stríð
Neyð á Kúbu hefur aukist eftir að Bandaríkjastjórn herti í ársbyrjun á viðskiptabanni sem hefur verið í gildi í yfir sex áratugi. Á Allsherjarþingi Sa...
Brúin leggur af stað yfir ána
📅 27.10.2026 👁️ 3
Brúin leggur af stað yfir ána
Það tekur um tíu daga að draga nýja Ölfusárbrú yfir ána, á sinn stað. Ferðalagið nemur 330 metrum og hún fer um fimm metra á klukkustund.Brúin var smí...
Uppistandari gerir grín að viðbrögðum Íslendinga
📅 27.10.2026 👁️ 3
Uppistandari gerir grín að viðbrögðum Íslendinga
Uppistandarinn sprenghlægilegi Sarah Millican gerir stólpagrín að viðbrögðum Íslendinga við heiti á sýningunni hennar þegar hún kom fyrst til landsins...
Haft á­hrif með því að „standa í lappirnar gagn­vart tæknirisunum“ - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Haft á­hrif með því að „standa í lappirnar gagn­vart tæknirisunum“ - Vísir
„Við vorum að fylgja eftir samtali sem við áttum,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í samtali við fréttastofu en þessi sami hópur, forsæti...
Guðmundur Andri ósáttur partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
📅 27.10.2026 👁️ 3
Guðmundur Andri ósáttur partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, er á meðal þeirra sem leggjast gegn óbreyttri starfsemi veislusalarins Hlöðunnar á...
Hildi og Inga Þór sagt upp - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Hildi og Inga Þór sagt upp - Vísir
„Á meðan ég var í flugi fékk ég fundarboð, sem ég eðlilega sá ekki, og í rúllustiga á flugvelli á leið í lest fékk ég uppsagnarbréf frá Reykjavíkurbor...
Trump says US voter fraud is 'rampant' - evidence suggests it is extremely rare
📅 27.10.2026 👁️ 3
Trump says US voter fraud is 'rampant' - evidence suggests it is extremely rare
As the US president casts doubt on the security of the midterm elections, BBC Verify examines his claims.
Sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir 18 ár í starfi
📅 27.10.2026 👁️ 3
Sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir 18 ár í starfi
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir var ein þeirra sem sagt var upp hjá Reykjavíkurborg í dag. Hún greinir frá þessu í færslu á Facebook.Hildur hafði star...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Nautið í flaginu: tekst að koma hring í nefið á Trump?
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sigvaldi Einarsson skrifar: Nautið í flaginu: tekst að koma hring í nefið á Trump?
Þingkosningarnar 3. nóvember gætu ráðið því hvort Donald Trump fær að fara sínu fram næstu tvö árin eða hvort bandaríska lýðveldið veitir honum loksin...
Þrjú dekk sprungu á bílaleigubílnum – „Algjört ábyrgðarleysi að leigja út svona bíl“
📅 27.10.2026 👁️ 4
Þrjú dekk sprungu á bílaleigubílnum – „Algjört ábyrgðarleysi að leigja út svona bíl“
Erlendir ferðamenn eru rjúkandi reiðir eftir að hafa leigt bílaleigubíl á Íslandi. Dekkin voru í svo slæmu ástandi að þrjú þeirra sprungu á stuttum tí...
Fjárfesta í gagnaverum fyrir 57 milljarða á þessu ári
📅 27.10.2026 👁️ 4
Fjárfesta í gagnaverum fyrir 57 milljarða á þessu ári
Fjárfestingar gagnaveranna hafa mikil áhrif á allar hagtölur. Í greiningu Óskars Hrafnssonar, hjá Greiningu Íslandsbanka, sem kom út í dag kemur fram ...
„Skorið niður til þess eins að skera niður“ - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
„Skorið niður til þess eins að skera niður“ - Vísir
Stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fá beina uppsögn, en að um er að ræða síðasta áfanga við fækkun stöðugilda....
Alexander brothers each sentenced to 30 years in prison for sex trafficking case
📅 27.10.2026 👁️ 3
Alexander brothers each sentenced to 30 years in prison for sex trafficking case
The trio - two of whom were high-profile US real estate moguls - were found guilty using their social status to lure women to parties and then raping ...
Eisenkot með nauma yfirburði í útgönguspám
📅 27.10.2026 👁️ 4
Eisenkot með nauma yfirburði í útgönguspám
Hvorki meirihluti Benjamíns Netanyahu forsætisráðherra né stjórnarandstöðublokk Gadis Eidenkot geta myndað þingmeirihluta samkvæmt útgönguspám í Ísrae...
Trump stóreykur losun metans
📅 27.10.2026 👁️ 4
Trump stóreykur losun metans
Trump stóreykur losun metans Banda­ríkja­for­seti losar um reglur sem eiga að hindra að metan ber­ist í and­rúms­loftið við olíu­vinnslu. Efnið veldur...
Enginn skýr sigur­vegari í útgönguspám - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Enginn skýr sigur­vegari í útgönguspám - Vísir
Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun katörsku fréttaveitunnar Al Jazeera en þar segir einnig að samkvæmt ísraelsku sjónvarpsstöðinni Channel...
Ceasefire extended across Ukraine's Kherson region, officials say
📅 27.10.2026 👁️ 4
Ceasefire extended across Ukraine's Kherson region, officials say
The truce was originally planned for the stranded residents of Oleshky, and Russia and Ukraine say no breaches have been reported.
16 milljónir á mánuði fyrir eitt barn
📅 27.10.2026 👁️ 4
16 milljónir á mánuði fyrir eitt barn
Við sitjum í stofu í fjölbýlishúsi í Grafarvogi. Fjölmargar myndir af ungum manni prýða þar veggi og borð.„Hann var náttúrulega alveg ótrúlega skemmti...
King acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
📅 27.10.2026 👁️ 4
King acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
The King is on a nine-day tour that will take him to three countries, including the Bahamas, Guyana and Antigua and Barbuda.
Bahamas: King Charles acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
📅 27.10.2026 👁️ 3
Bahamas: King Charles acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
The King is on a nine-day tour that will take him to three countries, including the Bahamas, Guyana and Antigua and Barbuda.
Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn
Sveinn R. Eyjólfsson, einn stofnandi fjölmiðlanna Vísis.is, Fréttablaðsins, DV og Dagblaðsins, er látinn, 88 ára að aldri.Hann lést á Landspítalanum l...
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvaða menningu erum við að skapa?
📅 27.10.2026 👁️ 3
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvaða menningu erum við að skapa?
Hvað gerist þegar valdamesta fólk heims sýnir með orðum sínum og hegðun að það sé í lagi að niðurlægja aðra, hóta þeim eða ala á tortryggni gagnvart h...
Fyrsta mynd­bandi Tár leik­stýrt af Bald­vin Z - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Fyrsta mynd­bandi Tár leik­stýrt af Bald­vin Z - Vísir
Elín Eyþórsdóttir og Zöe Ruth Erwin skipa hljómsveitina. Þær hafa báðar skapað tónlist hvor í sínu lagi og í öðrum hljómsveitum um árabil en hafa fund...
Lúðvík fannst ekki
📅 27.10.2026 👁️ 4
Lúðvík fannst ekki
Líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður í sprungu í Grindavík árið 2024, fundust ekki í leitaraðgerðum sem ráðist var í. Þeim verður ekki hal...
Serial killer Ted Bundy linked to teenage girl's murder after 52 years
📅 27.10.2026 👁️ 2
Serial killer Ted Bundy linked to teenage girl's murder after 52 years
Authorities in Utah used advanced DNA technology to solve the cold case decades after the notorious killer was executed.
Hildur Lilliendahl fékk uppsagnarbréf á ferðalagi eftir átján og hálft ár hjá borginni
📅 27.10.2026 👁️ 4
Hildur Lilliendahl fékk uppsagnarbréf á ferðalagi eftir átján og hálft ár hjá borginni
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segist hafa fengið uppsagnarbréf frá Reykjavíkurborg í miðju ferðalagi erlendis, eftir átján og hálfs árs starf. Hún l...
Hildi sagt upp hjá borginni
📅 27.10.2026 👁️ 4
Hildi sagt upp hjá borginni
Hildi sagt upp hjá borginni Hildur Lilliendahl Mynd: Instagram Baráttukonan og verkefnastjórinn Hildur Lilliendahl Viggósdóttir var á leið til útlanda...
Chris Mason: Budget needs to go some way towards delivering PM's promises
📅 27.10.2026 👁️ 4
Chris Mason: Budget needs to go some way towards delivering PM's promises
Support on the cost of living, and in particular energy bills, as well as announcments on devolution will be central to John Healey's first Budget.
Dutch zookeeper dies after being mauled in leopard enclosure
📅 27.10.2026 👁️ 4
Dutch zookeeper dies after being mauled in leopard enclosure
The woman began her career at the park when she was 17 and had worked there on-and-off for four decades.
Dutch zookeeper dies after being mauled by leopard
📅 27.10.2026 👁️ 3
Dutch zookeeper dies after being mauled by leopard
The woman began her career at the park when she was 17 and had worked there on-and-off for four decades.
Arion banki greiðir 280 milljónir í sátt vegna milligöngu um markaðssvik
📅 27.10.2026 👁️ 4
Arion banki greiðir 280 milljónir í sátt vegna milligöngu um markaðssvik
Arion banki og Seðlabanki Íslands hafa gert með sér sátt vegna brota Arion banka á ákvæðum reglugerðar um markaðssvik. Fjármálaeftirlit Seðlabankans h...
280 milljónir í sekt vegna milligöngu um markaðssvik
📅 27.10.2026 👁️ 3
280 milljónir í sekt vegna milligöngu um markaðssvik
Arion banki og Seðlabanki Íslands hafa gert með sér sátt vegna brota Arion banka á ákvæðum reglugerðar um markaðssvik. Fjármálaeftirlit Seðlabankans h...
Engar vís­bendingar fundist en form­legri leit lokið - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Engar vís­bendingar fundist en form­legri leit lokið - Vísir
Í tilkynningu frá lögreglu þess efnis segir að aðgerðin hafi staðið yfir í sjö og hálfa klukkustund og fól meðal annars í sér að  tveir leitarmenn sig...
Allar helstu uppljóstranirnar í heimildarmynd Netflix um Matthew Perry
📅 27.10.2026 👁️ 3
Allar helstu uppljóstranirnar í heimildarmynd Netflix um Matthew Perry
Gæti nýja heimildarmyndin á Netflix um Matthew Perry verið sorglegri? Höskuldarviðvörun: Ef þú vilt ekki lesa hvað kemur fram í Netflix þriggja þátta ...
Dýna í golfhermi og 70 milljóna hagnaður
📅 27.10.2026 👁️ 4
Dýna í golfhermi og 70 milljóna hagnaður
Fyrrverandi starfsmenn einkarekins búsetuúrræðis fyrir börn með fjölþættan vanda segja eigendurna spara í þjónustu við börnin á meðan þeir hagnist sjá...