Saga Björgvinsdóttir, nemandi í Grunnskólanum á Ísafirði, endurheimti Íslandsmetið í hreystigreip í Skólahreysti þegar hún hékk í 30 mínútur og 9 sekúndur í keppni kvöldsins. Með því bætti hún fyrra met um fimm mínútur.
Dagbjört Lilja Oddsdóttir átti metið áður, en hún hékk í 25 mínútur og eina sekúndu í úrslitum Skólahreysti í fyrra.
Hún bætti metið tvívegis það ár, fyrst í undanriðli þegar hún sló fyrra met Sögu frá 2024. Saga svaraði því sama dag og endurheimti metið.
Í úrslitakeppni Skólahreysti í fyrra bætti Dagbjört metið enn frekar og hreppti það aftur af Sögu. Hún bætti Íslandsmetið því tvisvar sama árið.
Dagbjört keppir fyrir hönd Lágafellsskóla í undanriðli á morgun klukkan 19:45.
Þetta er í þriðja sinn sem Saga setur Íslandsmet í greininni og á hún nú besta, þriðja besta og fimmta besta tímann í hreystigreip.
Grunnskólinn á Ísafirði hafnaði í öðru sæti í riðlinum og getur því átt möguleika á að komast í úrslit, þar sem fimm sterkustu skólarnir sem ekki lentu í 1. sæti komast einnig í úrslit. Saga gæti því átt annað tækifæri til að bæta eigið met.