Sigurdagurinn 9. maí er haldinn hátíðlegur í Rússlandi og fleiri fyrrum Sovétríkjum ár hvert þegar sigurs á nasistum í seinni heimsstyrjöld er minnst. Miklar hersýningar hafa verið haldnar þennan dag í valdatíð Pútíns, þar sem þúsundir hermanna hafa tekið þátt og ýmis vopn verið til sýnis. Hátíðahöldin á morgun verða þó öllu lágstemmdari en síðustu ár vegna drónaárása Úkraínumanna.
Engin hernaðarleg farartæki, eins og skriðdrekar, verða til sýnis við hátíðarhöldin á morgun. Í fyrra voru 11.000 hermenn og 200 hernaðarleg farartæki til sýnis og um 30 þjóðarleiðtogar mættu. Aðeins er búist við þremur í ár, frá Belarús, Laos og Malasíu.
Varnarmálaráðuneyti Rússlands hefur ekki gefið út hve margir hermenn taka þátt í hersýningunni í ár, segir útlægi rússneski fjölmiðillinn The Moscow Times. Þá segir í umfjölluninni að dagurinn hafi breyst eftir að Rússlandsher hóf allsherjarinnrás í Úkraínu. Áður hafi hann verið helgaður minningu þeirra sem féllu við að verja landið en sé í dag orðinn hluti af áróðri stjórnvalda til að réttlæta stríðið í Úkraínu, að verið sé að berjast gegn nasisma eins og í seinni heimsstyrjöld.
Stjórnvöld hafa skert aðgang fólks að farsímakerfinu í Moskvu síðustu vikur og lokað verður fyrir það á morgun. Stjórnvöld segja það gert í öryggisskyni. Þá fá ekki neinir erlendir blaðamenn leyfi til að mæta á hersýninguna á Rauða torginu á morgun.
Ekkert lát er á árásum Rússlandshers á Úkraínu og her Úkraínu hefur hert gagnárásir. Nokkrum flugvöllum í suðurhluta Rússlands var lokað í morgun eftir árás á byggingu þaðan sem flugumferð er stjórnað.