Þetta var fyrir tveggja manna fund forsetanna á hliðarlínum APEC-ráðstefnunnar í Kína. Í kjölfarið fundaði Trump svo með Xi Jinping, forseta Kína, og verður í kjölfarið haldinn þriggja manna fundur seinna í dag.
Sjá einnig: Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu
Eftir að hann kallaði Pútín vin sinn sagði Trump að þeir hefðu átt frábært samband um árabil. Þeir hefðu þekkst í langan tíma og að hann teldi frábæra hluti geta komið út úr fundarhöldum þeirra.
Júrí Úsjakóv, ráðgjafi Pútíns, segir að forsetinn hefði yfirgefið fundinn með Trump, sem stóð yfir í 35 til 45 mínútur, í frábæru skapi. Hann segir að helsta umræðuefnið hafi verið stríð Rússa í Úkraínu en að þeir hafi hvorugur varpað fram sérstaklega mikilvægum yfirlýsingum.
🤣 https://t.co/iYTEaTi9CU
— Rapid Response 47 (@RapidResponse47) November 19, 2026
Eftir að hann tók aftur við embætti forseta Bandaríkjanna hætti Trump mestum stuðningi við Úkraínu og hefur hann ítrekað gagnrýnt Úkraínumenn harðlega. Á sama tíma hefur hann ítrekað lofað Pútín og jafnvel talað máli hans og Rússa.
Alger viðsnúningur og lítill gróði
Á fyrsta kjörtímabili Trumps var í þjóðaröryggisstefnu hans talað um að Rússar og Kínverjar ætluðu sér að velta Bandaríkjunum úr sessi sem helsta stórveldi heimsins. Herafla Bandaríkjanna var gert að hætta að leggja áherslu á hið svokallaða stríð gegn hryðjuverkum og var markmiðið þess í stað að sporna gegn auknum áhrifum Rússlands og Kína.
Sjá einnig: Snúa sér að Kína og Rússlandi
Þá var stefnan einnig sett á þá leið að Bandaríkin ættu að styrkja bandalög sín og leita nýrra bandamanna.
Eins og segir í grein New York Times er þessi stefna hvergi sýnileg í Hvíta húsinu dagsins í dag. Á síðustu tveimur árum hafi Trump meira reynt að friða þá Xi og Pútín með hjali en hafi lítið sem ekkert grætt á því.
Sjá einnig: Gagnrýndi árásir Úkraínumanna í Rússlandi
Stríð Rússa í Úkraínu heldur áfram, með stuðningi Kína, og bæði ríki hafa veitt Írönum aðstoð í stríði þeirra gegn Bandaríkjunum. Þá stendur Pútín fyrir svokölluðum fjölþáttaógnum, árásum og skemmdarverkum í Evrópu og Xi heldur ítrekaðar og umfangsmiklar heræfingar kringum Taívan, svo eitthvað sé nefnt.