Lögreglan á Norðurlandi eystra handtók fimm á Akureyri síðdegis. Skotvopn fundust í tveimur bílum. Þetta staðfestir Hjalti Bergmar Axelsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Lögreglu barst tilkynning um grun um vopnaburð og voru tveir bílar stöðvaðir. Skotvopn fundust í þeim báðum.
Kolbrún Björg Jónsdóttir aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi Eystra segir að lögreglu hafi borist tilkynning um mann sem otað hefði skotvopni að öðrum. Kolbrún segir að lagt hafi verið hald á tvenns lags skotvop en að lögregla veitti ekki frekari upplýsingar að svo stöddu.
Fimm voru handteknir og fluttir í fangaklefa. Sérsveit ríkislögreglustjóra aðstoðaði lögreglu við aðgerðina. Engin meiðsli urðu á fólki.
Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í aðgerðum lögreglunnar á Akureyri í gær. Níu voru handteknir í fyrstu en átta var sleppt á staðnum. Aðeins einn mannanna reyndist vera með hníf á sér og var hann vistaður í fangageymslu í nótt.
Hjalti segir ekki liggja fyrir hvort tengsl séu á milli málanna tveggja en telur það ólíklegt.