Í Höfnum á Reykjanesi eru að rísa smiðja og verbúð, byggðar með fornu verklagi. Húsasmíðameistari segir nauðsynlegt að halda þekkingunni við.
Sveinn Enok Jóhannson, bóndi í Höfnum, hefur skipulagt námskeið í fornu handverki. „Við erum að smíða grind úr rekavið sem við söfnuðum. Grindin fer inn í hlaðið hús sem við hlóðum upp fyrir tveimur árum.“
Byggir námsefnið á veggjum og görðum sem enn standa
Fornverk varð til vegna þess að Sveinn fann aldrei tíma til að komast í Skagafjörð á grjóthleðslunámskeið. Hann greip til þess ráðs að hefja námskeið undir nafninu Fornverk í Höfnum. Verkefnið hefur hlotið styrki frá uppbyggingarsjóði Suðurnesja, Samfélagssjóði landsbankans og Húsafriðunarsjóði Minjastofnunar.
„Ég bý á þessu rosalega fallega svæði með hlöðnum görðum og hrundum tóftum út um allt,“ segir Sveinn. Það sé honum hjartans mál að ganga fallega frá umhverfi sínu. Á grjóthleðslunámskeiðunum eru nemendur að endurhlaða rétt sem stóð við Réttaveg í Höfnum.
Í sumar er kennd grindasmíði úr rekavið. Húsin eru byggð á þeim sem fyrir voru. „Við erum að fara eftir túnakortum frá 1918 og þar geturðu greinilega séð að þessar byggingar voru til staðar þá.“ Á námskeiði fyrr í sumar var reist grind í verbúð en byggingin fyrir framan hús var væntanlega smiðja.
Þurfti að sækja þekkingu út fyrir landsteinana
Námskeiðið kennir Snædís Traustadóttir, húsasmíðameistari sem sérhæfir sig í gömlum húsum. Snædís lærði aðferðirnar fyrst af pabba sínum og afa sem einnig voru húsasmíðameistarar.
„Þegar ég er virkilega dottin í almennilegan nördaskap í gömlum húsum þá fattaði ég að okkur vantar auka þekkingu inn í landið, segir Snædís.
Í Noregi tók hún bachelor-gráðu í hefðbundnu handverki. Hún segir íslenska byggingalist samsuðu með rætur víðar á Norðurlöndunum en handverkið sé í grunninn eins og það norska.
Rekaviðurinn er fenginn á Suðurnesjum en ókosturinn við það er að það er að við er hætt að reka þangað. Það sem fæst er því gamalt og legið. Það er talsverð vinna að fá úr honum nothæfan við. Þeir bolir sem henta í stafi eru hoggnir til í ferkantað form.