Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að íslenskir bankar hafi hagrætt mikið í rekstri sínum síðastliðin ár. Sú hagræðing skili sér þó mögulega ekki til viðskiptavina með fullnægjandi hætti.
Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast með úttekt systurstofnunar sinnar í Noregi á samkeppni á bankamarkaði. Þar í landi hafa fyrri athuganir bent til lítils hreyfanleika viðskiptavina, hindrana fyrir nýja keppinauta og markaðsaðstæðna sem geti auðveldað samhæfingu vaxtastigs milli banka.
„Hlutfall rekstrarkostnaðar af tekjum íslenskra banka hefur lækkað verulega á síðustu árum. Hins vegar hefur vaxtamunur bankanna ekki minnkað samhliða á sama tíma. Þetta þýðir að það hagræði sem hefur náðst hefur kannski ekki skilað sér til viðskiptavina með fullnægjandi hætti,“ segir Páll Gunnar.
Hann segir þetta vísbendingu um að samkeppnin gæti verið betri á íslenskum bankamarkaði.
„Þegar systureftirlit okkar á Norðurlöndum, sem við erum í miklum samskiptum við, ræðst í svona athugun þá viljum við nýta okkur hana og fylgjast með niðurstöðum í þeirri athugun og athuga hvort ekki sé hægt að nýta þær hér á landi.“
Páll Gunnar segir að sumt af því sem Norðmenn bendi á og ætli að gera nú hafi íslenska Samkeppniseftirlitið íhugað að gera á fyrri árum. „En það er augljóst að betur má ef duga skal.“