Rekstrarhagnaður Emblu Medical, sem áður hét Össur, fyrir afskriftir var 40 milljónir dala á fyrsta ársfjórðungi, það er andvirði fimm milljarða króna. Framlegð lækkaði vegna neikvæðra gengisáhrifa og tolla. Þegar allt er talið til nam hagnaður 15 milljónum dala, sem eru um tveir milljarðar króna. Þetta er 21 prósenti meiri hagnaður en í fyrra.
Samkvæmt tilkynningu Emblu Medical um afkomuna nam innri vöxtur í sölu á stoðtækjum níu prósentum í ársfjórðungnum, vöxtur í spelkum og stuðningsvörum einu prósenti en tekjur af þjónustu við sjúklinga drógust saman um eitt prósent.