Hagnaður olíufyrirtækisins BP rúmlega tvöfaldaðist fyrstu þrjá mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra. Hagnaðurinn var 3,2 milljarðar bandaríkjadala en tæplega 1,4 milljarðar á sama tíma í fyrra.
Fyrirtækið segir hagnað viðskiptavina- og vörudeildarinnar hafa verið 2,5 milljarðar bandaríkjadala samanborið við aðeins 103 milljónir fyrir ári síðan. Hins vegar hafi leit og vinnsla á olíu og gasi hjá fyrirtækinu verið óbreytt.
Olíuverð hefur rokið upp eftir að stríðið í Mið-Austurlöndum byrjaði með árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran 28. febrúar. Tunna af Brent-hráolíu er nú á um 110 Bandaríkjadali samanborið við um 73 Bandaríkjadali fyrir stríðið.
Síðan stríðið hófst hefur umferð um Hormússund nánast alveg legið niðri. Um fimmtungur allrar olíu og jarðgass heimsins fer um sundið.
Meg O'Neill tók við sem forstjóri BP í byrjun apríl. Hún sagði fyrirtækið hafa unnið með viðskiptavinum og ríkisstjórnum að því að koma eldsneyti þangað sem þess sé þörf, til að lágmarka truflanir og áhrif á líf fólks.
Þrátt fyrir hagnaðinn býst fyrirtækið við minni framleiðslu á öðrum ársfjórðungi, að hluta til vegna áhrifa truflana á olíuflutningi í Mið-Austurlöndum.