Drengirnir tveir sem lögreglan á Vesturlandi lýsti eftir hafa látið vita af sér en ekki er vitað hvar þeir eru staddir. Ásmundur Kristinn Ásmundsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi segir lögregluna enn leita ábendinga um veru drengjanna. Þeir sem hafa upplýsingar um ferðir þeirra eftir þann tíma eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112.
Cezary Kobiela, sem er 15 ára, og Szymon Suchecki, sem er 14 ára, yfirgáfu heimili sín í Borgarnesi þann 13. september. Lögregla lýsti eftir drengjunum í nótt að beiðni barnaverndaryfirvalda.
Cezary er 178 sm á hæð, grannvaxinn og með stutt skollitað hár. Hann er klæddur í svarta peysu og svartar buxur. Szymon er 165 sm á hæð, grannvaxinn og með stutt dökkt hár. Hann er klæddur í svarta peysu, svartar gallabuxur og í svörtum skóm.