„Að vandlega íhuguðu máli, hef ég ákveðið, í krafti stöðu minnar sem umboðsmaður Boy George að hann muni ekki koma fram í Jesus Christ Superstar í London Palladium,“ sagði Paul Kemsley, umboðsmaður tónlistarmannsins, í tilkynningu á Instagram í gærkvöldi.
„Ákvörðunin hefur verið tekin af virðingu fyrir framleiðendunum, listræna teyminu og öllu leikfélaginu. Við erum þakklát fyrir fagmennskuna og skilninginn sem þau hafa sýnt okkur gegnum ferlið og óskum öllum viðriðnum velgengni með framleiðsluna,“ sagði hann einnig.
„Við gerum okkur jafnframt grein fyrir því að margir hafi keypt miða í von um að sjá George koma fram. Við biðjum þá aðdáendur innilega afsökunar vegna vonbrigðanna sem þessi ákvörðun veldur og við erum afar þakklátir fyrir áframhaldandi tryggð og stuðning þeirra.“
Kemsley greindi ekki frá ástæðunni fyrir ákvörðuninni en sagðist hafa tekið hana með hag sýningarinnar að leiðarljósi.
„George hefur aldrei verið hræddur við að standa með sinni sannfæringu og ég hef alltaf borið virðingu fyrir honum vegna þess. Ég tel það jafnframt vera á mína ábyrgð að taka ákvarðanir sem eru í hag umbjóðanda míns samhliða því að sýna öðrum virðingu. Í þessu tilfelli fannst mér rétt að stíga til hliðar og leyfa framleiðslunni að vera í miðpunkti og tryggja á sama tíma að allir sem eru viðriðnir geti haldið áfram af gagnkvæmri virðingu og velvild.“
Boy George átti að leika Herodes í uppfærslu sýningarinnar sem fjallar um ofsóknirnar í garð Jesúsar sem lauk með krossfestingu hans. George átti að deila hlutverkinu með fjórum öðrum leikurum, Julian Clary, Jesse Tyler Ferguson, Layton Williams og Richard Armitage, en sá síðastnefndi mun taka við af George.
Segir þjóðarmorðið vera stríð
Boy George gaf út reggílagið „עוד נרקוד“ sem heitir á ensku „We Will Dance Again“ á samfélagsmiðlinum X (áður Twitter) á mánudaginn 27. júlí. Þar svarar tónlistarmaðurinn þeim sem hafa gagnrýnt þjóðarmorð Ísraela á Palestínubúum síðastliðin þrjú ár.
#Shalom pic.twitter.com/0BfHIrThzO
— Boy George (@BoyGeorge) July 26, 2026
„You say genocide, I say war / When you’re attacked, that’s what the army’s for/ Does it get ugly? You bet it does / When I know you wanna kill every last one of us,“ segir meðal annars í laginu.
„Þú segir þjóðarmorð, ég segi stríð / Þegar ráðist er á þig, er herinn til þess / Verður það ljótt? Þú getur bókað það / Þegar ég veit að þú vilt drepa hvern einasta okkar,“ hljómar hann íslenskaður.
George gagnrýnir jafnframt í laginu aðra tónlistarmenn sem hafa lýst yfir stuðningi við Palestínu og syngur um árás Hamas á ísraelsku tónlistarhátíðina Nova Music Festival þar sem 378 Ísraelar voru drepnir og 44 teknir í gíslingu. Lagið vakti mikla hneykslan á samfélagsmiðlum, fjöldi fólks gagnrýndi tónlistarmanninn og var í kjölfarið kallað eftir mótmælum við Palladium-leikhúsið.
Boy George brást sjálfur við tilkynningunni um að hann væri hættur í sýningunni með því að birta gervigreindarmynd af sér með yfirvaraskegg í anda Groucho Marx þar sem á stóð: „Til að vísa í Groucho Marx þá myndi ég aldrei vilja vera hluti af neinum klúbbi sem vill ekki hafa mig sem meðlim.“s it is!”
Heiti lagsins er vísun í slagorðið „Við munum dansa á ný“ sem Ísraelar hafa notað til að undirstrika að þeir muni hafa betur gegn Palestínubúum og dansa á ný, líkt og þeir gerðu á Nova-hátíðinni. Boy George svaraði gagnrýni lagið með því að segja að það skipti engu máli hvað fólki fyndist.
„Það skiptir ekki máli hvað mér eða öðrum finnst. Hvenær munuð þið fatta að þið eruð ekki að gera neitt. Það er fokking brandari. Það hefur meira að segja slest upp á vinskap minn við gyðingavini mína. Brjálæðið á sér engin takmörk,“ skrifaði George í færslu á X.