Hælisleitandi sakfelldur fyrir nauðgun á 14 ára stúlku – Sleppur við fangelsi en þarf að mæta í fræðslu um mörk og samþykki
Samkvæmt framburði fyrir dómi neyddi hann stúlkuna inn í runna við hjólabrettasvæði, hrinti henni í jörðina og nauðgaði henni. Saksóknari sagði að hún hefði ítrekað sagt nei og beðið hann að hætta, en hann hefði hunsað það algerlega.
Einnig vakti sérlega mikinn óhug að hann hafi birt færslu á samfélagsmiðlum skömmu eftir árásina þar sem hann montaði sig af ódæðinu.
Dæmdur í fræðslu en ekki fangelsi
Í stað þess að senda hann í unglingafangelsi var honum gert að taka þátt í úrræði á vegum stjórnvalda þar sem fjallað er um samþykki, mörk og áhrif kynferðisofbeldis á þolendur.
Hann var jafnframt dæmdur í tveggja ára bann frá staðnum þar sem brotið átti sér stað.
Reiði meðal aðstandenda þolanda
Fjölskylda stúlkunnar hefur lýst yfir mikilli óánægju og reiði með niðurstöðuna. Í breskum fjölmiðlum kemur fram að þau telji dóminn ekki endurspegla alvarleika brotsins og að gerandinn sýni enga eftirsjá eða iðrun.
Lögmaður stúlkunnar benti á að hún sem þolandi muni þurfa að lifa við afleiðingar brotsins það sem eftir er ævinnar á meðan gerandinn, sem sýnir enga iðrun, þurfi að sitja námskeið.