Guðmundur Ingi Kristinsson, sem er þingmaður utan flokka eftir að hann sagði sig úr Flokki fólksins, hafði stólaskipti við fyrrverandi samflokkskonu sína í morgun.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, tilkynnti við upphaf þingfundar í dag að samkomulag hefði náðst milli Guðmundar Inga og Flokks fólksins um að hann verði aðalmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í stað Ásthildar Lóu Þórsdóttur. Hún verður í staðinn varamaður í nefndinni í stað Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, þingmanns Flokks fólksins.
Í staðinn víkur Guðmundur Ingi úr umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Sæti hans tekur Jónína Björk Óskarsdóttir sem var varamaður í nefndinni og Ásthildur Lóa verður varamaður hennar.
Þetta gerist aðeins tveimur dögum eftir að Guðmundur Ingi tók sæti í umhverfis- og skipulagsnefnd. Guðmundur Ingi var skipaður í þá nefnd á miðvikudag, daginn eftir að hann sagði sig úr Flokki fólksins og lét af embætti varaformanns.
Guðmundur Ingi lét af öllum nefndarstörfum þegar hann varð ráðherra og hafði ekki verið skipaður í nýja nefnd eftir að hann lét af því embætti og sneri aftur úr veikindaleyfi.