Guðmundur í Baggalút kominn með aðra nýja vinnu

Guðmundur Pálsson
Mynd: Blaðamannafélag Íslands
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar, snýr aftur á sjónvarpsskjáinn eftir hlé frá fjölmiðlum. Hún verður stjórnandi nýs spurningaþáttar RÚV, Landsleikanna, ásamt Guðmundi Pálssyni.
Þættirnir hefja göngu sína í lok september og verða í beinni útsendingu á laugardagskvöldum. Þar munu bæjarfélög etja kappi í spurningum, þrautum og heilabrotum.
Sigrún Ósk á langan fjölmiðlaferil að baki og vakti meðal annars athygli fyrir Leitina að upprunanum.
Mannlíf greindi nýverið frá öðru nýju starfi Guðmundar og því ljóst að nóg er að gera hjá honum um þessar mundir.