Guðjón er nemandi við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og tók þátt fyrir hönd skólans í söngkeppninni. Lagið sem hann flutti heitir upprunalega Strange og er flutt af bresku tónlistarkonunni Celest. Hann gerði íslenskan texta við lagið sjálfur.
Guðjón vakti athygli fyrir einstaka sönghæfileika í keppninni sem skiluðu honum sigrinum.
Hann flutti lagið í Miðstöðinni í gærkvöldi og má sjá flutninginn í spilaranum hér að ofan.
Guðrún Sóley ræddi sömuleiðis við Guðjón í Kastljósi í gær og má sjá áhugavert viðtal við hann með því að smella hér.
Miðstöðin er nýr þáttur um dægurmenningu á RÚV. Þátturinn er á dagskrá öll fimmtudagskvöld.