Sveitarfélaginu Skagafirði hafa borist tilkynningar um mögulega mengun í Sauðá á Sauðárkróki. Þetta kemur fram í tilkynningu sveitarfélagsins á Facebook.
Tilkynning barst um að möguleg efni hafi komist í ána og að þau berist nú niður með ánni. Þá segir að málið sé litið alvarlegum augum og að það hafi verið tilkynnt til eftirlitsaðila sem vinni nú að því að kanna eðli og umfang málsins.
Íbúar og aðrir gestir sem eiga leið um svæðið eru beðnir um að sýna aðgát og forðast snertingu við vatnið.
Fólk sem kann að hafa einhverjar upplýsingar sem varpa frekara ljósi á málið er beðið um að hafa samband við Heilbrigðiseftirlit Norðurlands.