Grunnskólakennari í Reykjanesbæ er sakaður um að hafa makað saur á hurðarhúna á heimili og bifreið fyrir utan heimili eins þeirra manna sem sakað hafa Írisi Helgu Jónatansdóttur um umsáturseinelti.
Kennarinn er á fimmtugsaldri og hefur verið sendur í tímabundið leyfi frá störfum. Hann hefur sinnt starfi grunnskólakennara um árabil og hefur meðal annars hlotið hvatningarverðlaun fyrir kennsluverkefni sem hann stóð að.
Hann er ákærður fyrir hlutdeild í umsáturseinelti í máli Írisar Helgu, sem hins vegar er ákærð fyrir umsáturseinelti.
Auk þess var hún ákærð fyrir brot á barnaverndarlögum, rangar sakargiftir, skjalafals, hótanir og ærumeiðandi aðdróttanir.
Ákæran er óvenju umfangsmikil en þar eru talin upp hátt í 70 atvik sem hún er ákærð fyrir. Samkvæmt ákærunni ná brotin yfir tímabilið frá 2022 til 2025.
Sagður hafa hvatt Írisi til brota
Í tilviki grunnskólakennarans segir í ákæru að hann hafi veitt Írisi hvatningu og liðsinni við brot á tímabilinu 12. desember 2023 til 10. febrúar 2024.
Samkvæmt ákærunni er honum gefið að sök að hafa, í samráði við Írisi, farið tvisvar að heimili brotaþola þar sem hann bjó ásamt annarri manneskju.
Þar var saur makaður á hurðarhún heimilisins og síðar á hurðarhún bifreiðar. Saksóknari telur að háttsemin hafi verið til þess fallin að valda brotaþolum hræðslu og kvíða.
