Sveitarstjórnarmaður í Södertälje í Svíþjóð hefur verið sviptur sæti sínu eftir að uppvíst varð að spænsk yfirvöld gruna hann um brot framin á Spáni sem felast í þeirri háttsemi mannsins að beita fyrrverandi maka sinn andlegu ofbeldi og veita honum eftirför með ólögmætum hætti.
Það er sænska ríkisútvarpið SVT sem greinir frá málinu og hefur fyrr í vikunni fjallað um grunsemdir spænskra lögregluyfirvalda en sú umfjöllun varð til þess að að maðurinn ákvað að gefa ekki kost á sér í sveitarstjórnarkosningunum í Svíþjóð í september en í framhaldinu ákvað sveitarfélagið að svipta hann sætinu.
Hafa spænsk yfirvöld gefið út evrópska rannsóknarbeiðni með það fyrir augum að lögregla í Södertälje boði manninn til yfirheyrslu.
Ákvörðun um þetta tók dómstóll í spænsku höfuðborginni Madríd.
„Ekki sérstaklega eðlilegt“
Konan kærði manninn til lögreglu á Spáni eftir að hafa yfir lengra tímabil fengið fjölda tölvupóstskeyta og símhringinga frá honum þrátt fyrir að hún bæði hann eindregið að hætta að hafa samband. Meðal gagna málsins eru 52 tölvupóstar sem maðurinn sendi konunni sumarið 2023.
Í einum pósti skrifar maðurinn: „Ég veit að það er ekki sérstaklega eðlilegt að ég haldi áfram að skrifa þér þegar þú hefur sagt það skýrt að þú viljir ekki hafa samband.“ Í öðrum stendur sem svo: „Á morgun fer flug sem getur flutt þig til framtíðar með manni sem elskar þig mjög mikið. Mánuðum saman reyndi ég að elska þig þrátt fyrir að þú reyndir frá byrjun að skaða mig og reyna að fá mig út úr lífi þínu.“
Auk þessa hringdi maðurinn ótal sinnum í konuna ásamt því að senda gjafir á heimili hennar og einnig greindi hún lögreglu frá því að hann hefði sent henni kynferðislegar myndir og hljóðupptökur. Í skýrslutöku hjá lögreglu á Spáni kom fram að hún óttaðist um öryggi sitt og lýsti framferði hans sem áreiti heltekins manns.
Nýjar upplýsingar fyrir flokkinn
Fara spænsk yfirvöld þess á leit við sænsku lögregluna í evrópsku rannsóknarbeiðninni að hún yfirheyri hann í mynd og komi upptökunni til spænsku lögreglunnar.
Maðurinn hefur ekki hlotið refsidóma áður og spænska lögreglan rannsakar nú ásakanirnar gegn honum.
Þrátt fyrir tilraunir SVT til að ná tali af honum hefur hann engu svarað en talsmaður stjórnmálaflokks hans í Södertälje svarar erindi ríkisútvarpsins svo: „Við lítum málið að sjálfsögðu alvarlegum augum. Ásakanirnar sem nú eru fram komnar eru nýjar upplýsingar fyrir mig og flokkinn.“