Á hátíðinni er keppt um besta götubita landsins og keppir sigurvegarinn fyrir Íslands hönd á European Street Food Awards í lok september.
Þátttakendur í ár fylltu meira en fjörutíu matarvagna og sölubása.
Boðið var upp á fjölbreyttan og spennandi mat frá öllum heimshornum.
Í fyrra mættu meira en 100 þúsund gestir samkvæmt skipuleggjendum. Ekki hafa verið birtar tölur fyrir hátíðina í ár.
Veðrið var því miður ekki upp á sitt besta í Reykjavík þessa helgina en fjöldi fólks lét það ekki á sig fá.