Talsvert gustaði um bresk stjórnmál í gær og krafan um brotthvarf forsætisráðherrans Keirs Starmers varð háværari en áður. Josh Simons, þingmaður Verkamannaflokksins fyrir Makerfield, hefur ákveðið að stíga til hliðar til að rýma fyrir Andy Burnham, borgarstjóra Manchester.
Josh Simons hefur látið af stuðningi við leiðtogann Starmer. Burnham þáði boðið og hefur sýnt áhuga á að ýta Starmer til hliðar. Borgarstjórinn verður þó ekki sjálfkrafa frambjóðandi Verkamannaflokksins í aukakosningum í Makerfield en Starmer hefur sagst ekki ætla að standa í vegi fyrir honum.
Heilbrigðisráðherrann Wes Streeting sagði af sér um hádegisbil í gær, sagðist ekki lengur bera traust til Starmers og hvatti hann til að undirbúa afsögn sína. Streeting hefur þó enn ekki tilkynnt að hann ætli að skora Starmer á hólm og enginn háttsettur ráðherra hefur fetað í fótspor hans og yfirgefið stjórnina. Fjórir undirráðherrar sögðu þó af sér.
Stuðningsmenn Streetings segja hann ætla sér leiðtogasætið og forsætisráðherraembættið. Streeting sagði ljóst að Starmer væri ekki ætlað að leiða Verkamannaflokkinn í næstu kosningum eftir afhroð í sveitarstjórnarkosningum á dögunum. Yfir 80 þingmenn hvöttu Starmer til að víkja, sem er sá fjöldi sem þarf til að knýja á um leiðtogakjör.
Beth Rigby, stjórnmálagreinandi Sky, segir andstæðinga Starmers hafa verið mjög háværa í gær en bendir á að ríflega hundrað þingmenn hafi opinberlega lýst stuðningi við hann auk þess sem átta eða níu ráðherrar hafi mætt í viðtöl í sama tilgangi.
Hún býst þó við að fram undan sé stormasamur tími fyrir Starmer sem geti lyktað með því að flokksmenn þverri þolinmæði og hann neyðist til afsagnar. Óánægjan í garð Starmers stafar ekki síst af því að hann skipaði Peter Mandelson sem sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum án þess að standast öryggisvottun.
Mandelson var rekinn úr embætti í haust eftir að upp komst að samband hans við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein var mun nánara en áður hafði verið talið. Í síðustu viku varð Verkamannaflokkurinn fyrir miklu áfalli þegar hann tapaði miklu fylgi í sveitarstjórnarkosningum sem juku gagnrýnina á Starmer verulega.