Stór hluti Dana hefur átt í erfiðleikum með að nota greiðslukort sín í morgun vegna alvarlegrar bilunar hjá greiðslumiðlunarfyrirtækinu Nets. Bilunin hefur mikil áhrif hjá Dönum bæði í heimalandinu og erlendis sem margir hverjir geta ekki greitt fyrir vöru og þjónustu.
Danskir fjölmiðlar hafa meðal annars sagt frá bílum sem sitja fastir í bílakjallara og fólki sem hefur misst af flugi eða er fast á flugvöllum erlendis vegna bilunarinnar. Einnig er farið að bera á vandræðum í Svíþjóð og Noregi.
Nets hefur beðið verslanir um að virkja netlausar leiðir til að taka á móti greiðslum. Það heldur meðal annars viðskiptum opnum hjá stærstu matvöruverslanakeðjunum. Þá geti komið sér vel að vera með kortið sjálft meðferðis, ekki bara kortið í farsímanum. Fyrirtækið segist hafa fundið orsök bilunarinnar en vill ekki upplýsa hver hún er. Ekki er heldur hægt að segja til um hvenær kerfið verður komið í lag.
Tíu mánuðir frá síðustu bilun
Aðeins eru tíu mánuðir síðan önnur svona bilun kom upp. Hún olli líka töluverðum óþægindum og meðal annars myndaðist mikill umferðarhnútur við brúna yfir Stórabelti þar sem ekki var hægt að greiða tolla. Forsvarsmenn brúarinnar segja nú að hliðið verði einfaldlega opnað ef langar raðir myndast.
Morten Bødeskov starfandi viðskiptaráðherra segir í yfirlýsingu að bilunin sé alvarlegt mál. Yfirvöld séu í miklum samræðum við Nets og hann búist við að fyrirtækið leysi málið hratt og af ábyrgð. Dansk Industri, samtök iðnaðarins í Danmörku, segja að bilunin sýni að það þurfi að koma upp traustara og öruggara greiðslumiðlunarkerfi. Það sé miður að aðeins tíu mánuðum eftir síðustu bilun hjá sama fyrirtækinu sé þessi staða komin upp aftur.