Frönsku ferðamönnunum tveimur sem gerðust ítrekað uppvísir að utanvegaakstri á hálendi Íslands í vikunni hefur verið gert að greiða sekt sem hleypur á hundruðum þúsunda króna fyrir athæfið.
„Málið hefur verið afgreitt hvað þetta varðar, og við skulum vona að þeir geri þetta bara aldrei aftur og láti sér þetta að kenningu verða,“ segir Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við mbl.is.
Hann staðfestir jafnframt að sektin hlaupi á hundruðum þúsunda króna, eins og áður hefur verið greint frá að sektir fyrir slíkt athæfi geti numið.
Létu sér ekki segjast
Fyrr í dag var greint frá því að tveir erlendir ferðamenn, hvor á sínum Land Rover-jeppa, hefðu verið staðnir að utanvegaakstri á Emstruleið, frá Einhyrningi og inn að Álftavatni af leiðsögumanninum Klemenz Geir Klemenzsyni, sem hafði þá af þeim afskipti og las að eigin sögn yfir þeim pistilinn.
Mennirnir munu fyrr í vikunni hafa fest annan jeppa sinna í holu utan vegar undir Kötlu, og virt viðvaranir Margrétar Herborgar Nikulásdóttur leiðsögumanns um að utanvegaakstur væri ólöglegur á Íslandi að vettugi.
Hennar upplifun af samskiptum við mennina var sú að þeim hafi verið slétt sama um það sem hún sagði. „Hann bara yppti öxlum og sagðist hafa gert mistök,“ sagði hún í samtali við mbl.is fyrr í dag, en þar sagðist hún jafnframt telja að ekki væru nægilegar afleiðingar fyrir ferðamenn sem staðnir séu að utanvegaakstri.
Svöruðu kalli um yfirheyrslu í snatri
Eins og áður hefur komið fram brýtur utanvegaakstur af þessu tagi gegn íslenskum náttúruverndarlögum, enda hefur hann mikil áhrif á ásýnd viðkvæmrar náttúru hálendisins.
Lögregla kallaði mennina í yfirheyrslu fyrr í kvöld, en þeir munu hafa hlýtt kallinu í snatri og greitt sektina greiðlega.
„Þeir hlýddu fyrirmælum um að koma á lögreglustöð, og þar lauk máli með greiðslu sektar,“ segir Þorsteinn.

