Stjórnvöld í Rússlandi ætla að láta loka Goethe-stofnunum í Moskvu, Pétursborg og Yekaterinburg. Sergei Lavrov utanríkisráðherra segir þetta svar við þeirri ákvörðun stjórnvalda í Rússlandi að láta loka Húsi rússneskrar menningar í Berlín eftir ásakanir um að Rússar bæru ábyrgð á tilraun til drónaárásar á flugvelli í Leipzig.
„Auðvitað verður þeim lokað eftir að okkar menningarmiðstöð var lokað þar,“ sagði Lavrov á efnahagsráðstefnu í Vladivostok.
Utanríkisráðherra Þýskalands, Johan Wadephul, segir Goethe-stofnunina hafa gegnt mikilvægu hlutverki sem menningarbrú sem þýsk stjórnvöld hafi verið reiðubúin að viðhalda. Þá sagði ráðherrann að almennt hafi verið góð samskipti milli fólks í Rússlandi og Þýskalandi. Ráðamenn í Rússlandi hafi verið vandamálið.
Stjórnvöld í Þýskalandi sökuðu stjórnvöld í Rússlandi á þriðjudag um að bera ábyrgð á tilraun til drónaárásar á flugvöll í Leipzig í byrjun ágúst. Þá var tilkynnt að Þjóðverjar ætluðu að herða reglur um komur Rússa til Þýskalands, auka þrýsting á skuggaflota Rússa og fyrirskipa lokun ræðisskrifstofu Rússlands í Bonn.
Rússar hafa hótað að grípa til frekari aðgerða en lokana á Goethe-stofnunum, svo sem að fyrirskipa lokun Aðalræðisskrifstofu Þýskalands í Sankti-Pétursborg.