Það var vissulega titringur í aðdraganda þess að leiðtogar NATO-ríkjanna settust niður hér í Ankara í dag: stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa um langt skeið gagnrýnt önnur aðildarríki fyrir að verja ekki nægu fé til varnar- og öryggismála.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sent öðrum leiðtogum tóninn fyrir að veita ekki aðstoð og aðstöðu fyrir hernaðaraðgerðir gegn Íran, svo ekki sé minnst á ásælni Bandaríkjamanna í Grænland; nokkuð sem olli miklum titringi á norðurslóðum í vetur.
Trump bætti svo um betur í morgun; á blaðamannafundi rétt fyrir leiðtogafundinn endurtók hann þessar umkvartanir. En tónninn á fundinum virðist hafa verið allt annar en þessi aðdragandi gaf tilefni til að ætla.
„Andinn á fundinum var mjög góður,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra þegar RÚV talaði við hana skömmu eftir að leiðtogafundinum lauk. „Það var mikið talað um samstöðu, um styrkleika bandalagsins.
Og kannski vegna þess að aðdragandi fundarins var ekki eins mildur og stemningin inni á fundinum, þá lagði fólk mikið upp úr því að koma því til skila að bandalagið hefði aldrei verið sterkara.
Það sést í fjölda meðlima og fjárframlaga sem eru að fara inn í bandalagið. Vissulega er dýnamíkin aðeins að breytast í bandalaginu; Evrópa og Kanada eru að taka á sig meiri byrðar, til að létta aðeins á Bandaríkjunum, þótt allir séu að auka við sinn hlut. En þetta er lykiltónninn út af þessum fundi,“ sagði Kristrún.