Straumi er lýst sem fjölbreyttri kvöldstund þar sem fjórir upprennandi danshöfundar, valdir úr hópi 120 umsækjenda, leiddu áhorfendur um ólíka heima samtímadansins. Verkin fjögur beina öll sjónum að mannlegu eðli en út frá ólíkum sjónarhornum og er útkoman eins konar hlaðborð af samtímadansi.
Verkin fjögur eru: Blue Wall eftir finnska danshöfundinn Leevi Mettinen, Imaarunneq eftir grænlensk-danska danshöfundinn Söruh Aviaja Hammeken, Skjálftavaktin eftir íslenska danshöfundinn Sóleyju Ólafsdóttur og Briefly Gorgeous eftir japansk-bandaríska danshöfundinn Hiroki Ichinose.
Fjölmennt var á frumsýningunni og fangaði Eygló Gísladóttir stemminguna á mynd. Sýningin verður sýnd þrisvar til viðbótar, dagana 14., 21. og 27. nóvember næstkomandi.