Gjör­sam­lega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu - Vísir

Gjör­sam­lega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu - Vísir

Gjör­sam­lega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu - Vísir

Þetta er meðal þess sem kemur fram í hlaðvarpinu Korter í kosningar í umsjón þeirra Magnúsar Sigurbjörnssonar og Péturs Ólafssonar. Líklega er fátt eins mikill fastur liður hvert einasta kosningakvöld og vera þeirra Ólafs og Boga á skjánum í kosningasjónvarpi RÚV þaðan sem þeir hafa síðan árið 1978 flutt landsmönnum nýjustu tölur fram á nótt þegar þær berast. 

Rætt var við þá Magnús og Pétur stjórnendur Korter í kosningar í kvöldfréttum Sýnar í gærkvöldi um stöðuna í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningar.

Erum lengi að telja

Í þættinum berst talið að talningum á kjördegi og því hvers vegna ekki séu útgönguspár á Íslandi líkt og í nágrannalöndunum. Þeir Bogi og Ólafur segjast telja það vera of dýrt. Þá sé hefðin á Íslandi sú að tölur berist í bútum en ekki að talið sé í kjördæminu og tölur komi beint inn líkt og víðast hvar í nágrannalöndunum.

„Þetta seinlæti hér, það er nú af ýmsum ástæðum og það eru þingmenn sem bera alla ábyrgð á því. Í fyrsta lagi lýkur kosningunum klukkan tíu. Þegar kosningalögunum var breytt 2021 þá lagði sérfræðinganefnd sem hafði undirbúið þau lög að kosningunum yrði lokið klukkan níu. Það máttu þingmennirnir ekki heyra nefnt og breyttu því,“ segir Ólafur.

„Hún lagði líka til að það væri leyfilegt að telja og fara að telja á kjördag en núna má bara það sem kallað er flokka atkvæði á kjördag. Fyrir því er engin skynsamleg ástæða. Þannig það ætti að vera hægt vera búið að telja meirihluta atkvæðanna miklu miklu fyrr.“

Ekki talið á nokkrum stöðum þó það megi

Þá hafi nefndin lagt til breytingar á utankjörfundaatkvæðagreiðslu og að henni lyki degi fyrr en ekki sama dag og gengið er til kosninga, svo hefja mætti talningu utankjörfundaatkvæða fyrr.

„Síðasti punkturinn er sá að sérfræðingarnir lögðu líka til '21 að það yrði talið í þingkosningum í einstaka sveitarfélögum. En það mátti heldur ekki gera það og í þingkosningum þó það sé heimilt að vera með fleiri en einn talningastað í hverju kjördæmi að þá hefur það ekki verið gert. Til dæmis í Norðvestur þá voru öll atkvæðin talin í Borgarnesi, náttúrulega frábær reynsla af því, en það er náttúrulega augljóst að það er miklu hentugra að telja á Borgarnesi en líka á Ísafirði og líka á Sauðárkróki og ég bara skil ekki af hverju menn bara gera það ekki.“

Af hverju er þessi íhaldssemi gagnvart breytingum á þessu?

„Prófessor Ólafur hefur kennt þingmönnum um þetta og ég held það sé bara alveg hárrétt. Þetta er í rauninni algjörlega óskiljanlegt. Fyrir mér væri alveg nóg að kjósa til klukkan átta. Auðvitað á að leyfa það að byrja að telja atkvæði áður en búið er að loka kjörstöðum,“ segir Bogi.

Það er enginn bragur á því að vera þarna uppi í stúdíói til klukkan fjögur um morgun?

„Við höfum verið uppi í stúdíó til klukkan níu morguninn eftir. Þetta er gjörsamlega út í hött og bara í síðustu kosningum þegar það kemur í ljós í umræðuþætti í hádeginu daginn eftir að formaður Framsóknarflokksins er inni á þingi. Það er náttúrulega ekki nokkur bragur á að það sé talið með þessum hætti. Þetta er bara íhaldssemi í þingmönnum og þvergirðingsháttur,“ segir Bogi.

„Einhvern tímann heyrði ég því fleygt að sumir þeirra hefðu ekkert skilið hvað hafi verið lagt til í síðustu breytingum og þá hafi þeir hlaupið í það: Nei við gerum ekki neinar breytingar, bara hræddir við breytingar.“

Misjafnt atkvæðavægi svíði

Þá bendir Bogi í þættinum á misjafnt atkvæðavægi milli kjördæma í alþingiskosningum. Það hafi lengi sviðið.

„Ég einfaldlega sætti mig ekki við það að hafa ekki sama atkvæðisrétt og fólk sem við horfum á hérna uppi á Skaga handan við flóann. Ég bjó nú lengi á Seltjarnarnesi og var þar í Suðvesturkjördæmi, Reykjaneskjördæmi á undan og Suðvesturkjördæmi og þar var munurinn sá að vinur minn Gísli Einarsson, Gísli skessa hann var með tvö atkvæði fyrir hvert sem ég hafði. Ímyndið ykkur bara ef þetta hið sama gilti í forsetakosningum. Myndi fólk sætta sig við það? Nei. Eða þjóðaratkvæðagreiðslu?“

Bogi segist aldrei hafa sætt sig við þetta.

„Ef ég væri moldríkur hefði ég fyrir löngu farið í mál við ríkið og tapað því í héraði, tapað því í Landsrétti og tapað því í hæstarétti en unnið það í Strassborg. Það er málið, vegna þess að þetta er bara mannréttindabrot.“

Þurfi bara einfaldan meirihluta til breytinga

Bogi segist vona að það verði óþarfi þar sem Ólafur félagi hans hafi setið í nefnd um endurskoðun kosningalaganna. Ólafur segir ekki rétt að 2/3 þingmanna þurfi til að samþykkja slíkar breytingar.

„Þetta er þannig að sum ákvæði í kosningakerfinu eru bundin í stjórnarskrá. Til dæmis það að þingmenn skuli vera 63, kjörtímabilið skuli vera fjögur ár og að það séu jöfnunarsæti sem eigi að tryggja það að heildarþingsæti flokka sé í samræmi við landsfylgi þeirra.“

Bogi segir Ólaf hafa bent á það í mörg ár að það hafi ekki verið raunin í mörg ár. Ólafur segir það ekki hafa náðst fyrr en 1987 þegar gerðar hafi verið breytingar sem tryggt hafi að flokkarnir fengu réttan fjölda þingsæta. Það hafi tekist í öllum kosningum til 1999 þegar nýtt kerfi var tekið upp, með sex kjördæmum og níu jöfnunarsætum. Í kosningum síðan þá hafi tekist að jafna milli flokka í fjögur skipti en í fjögur skipti hefur einn flokkur fengið einum þingmanni og mikið. 2016 hafi Sjálfstæðisflokkur fengið einum of marga þingmenn og í kjölfarið getað myndað stjórn með Bjartri framtíð og Viðreisn.

„En sum ákvæði eru semsé í stjórnarskránni, önnur eru í kosningalögunum og sum þeirra atriða þurfa, til þess að breyta þeim í kosningalögum, þarf 2/3 atkvæða. Það gildir til dæmis um það að ef menn ætla að hverfa frá D'Hondt reglunni, reiknireglunni um það hvernig sæti eru reiknuð, þá þarf 2/3 til þess. Hinsvegar má breyta fjölda jöfnunarsæta, sem nú eru níu, það má fjölga jöfnunarmönnum allt upp í 27 með einföldum meirihluta. Það er líka hægt að breyta fjölda þingmanna í hverju kjördæmi og ná nánast fullri jöfnun milli kjördæmanna með einföldum meirihluta í þinginu. Þannig að í rauninni er hægt að gera mjög róttækar breytingar á jöfnun milli flokka og þá sérstaklega jöfnun milli kjördæma með einföldum meirihluta í þinginu. Margir halda að það þurfi 2/3 en þetta er útskýrt í kosningalögunum, hvaða ákvæði kosningalaganna þurfa 2/3 samþykki og hvaða ákvæði þurfa bara einfaldan meirihluta og þar er þetta algjörlega skýrt.“

#gjörsamlega #hanga #hött #svo #þurfa


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262879097d/gjorsamlega-ut-i-hott-ad-thurfa-ad-hanga-svo-lengi-i-studioinu

📰 Aðrar fréttir

Fara fram á hámarksrefsingu yfir Mancel
📅 30.06.2026 👁️ 0
Fara fram á hámarksrefsingu yfir Mancel
Saksóknari í Edition-málinu fer fram á hámarksrefsingu, 16 ára fangelsisvist, yfir Ming Ting Mancel. Verjandi hennar fer fram á sýknu.Þetta kom fram í...
Starmer boðar 300 milljarða punda fjárfestingu í varnarmálum
📅 30.06.2026 👁️ 0
Starmer boðar 300 milljarða punda fjárfestingu í varnarmálum
Starmer boðar 300 milljarða punda fjárfestingu í varnarmálum Fjár­fest­ingaráætl­un bresku rík­is­stjórn­ar­inn­ar í varn­ar­mál­um fel­ur með­al ann­...
7 steps after an accident on holiday in the Canaries
📅 30.06.2026 👁️ 0
7 steps after an accident on holiday in the Canaries
More than 18 million people book a sunny getaway to the Canary Islands, such as Tenerife or Lanzarote, each year. However, this can turn upside down i...
Fara fram á sex­tán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Fara fram á sex­tán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ - Vísir
Þetta kom fram í máli Karls Inga Vilbergssonar héraðssaksóknara fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur dómi í morgun. Í dag er sjötti og að óbreyttu síðasti dag...
Tilkynningum um áreitni og stafræn kyferðisbrot fjölgaði mikið
📅 30.06.2026 👁️ 0
Tilkynningum um áreitni og stafræn kyferðisbrot fjölgaði mikið
Tilkynningum um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot fjölgaði um 64% og tilkynntum kynferðisbrotum fjölgaði um 9% fyrstu þrjá mánuði ársins ...
Fyrst til að innleiða íslenska fullveldisgervigreind - MBL.IS
📅 30.06.2026 👁️ 0
Fyrst til að innleiða íslenska fullveldisgervigreind - MBL.IS
Sálfræðistofan Líf og sál hefur tekið í notkun Ulf, fyrstu almennu fullveldis gervigreindina á Íslandi, og verður þar með fyrsta íslenska fyrirtækið t...
3.9 magnitude earthquake felt between Gran Canaria and Fuerteventura
📅 30.06.2026 👁️ 0
3.9 magnitude earthquake felt between Gran Canaria and Fuerteventura
A 3.9 magnitude earthquake was recorded in the early hours of this morning (Tuesday) between Gran Canaria and Fuerteventura, with the tremor waking re...
Ísland og Noregur undanþegin verndaraðgerðum ESB vegna stálframleiðslu
📅 30.06.2026 👁️ 0
Ísland og Noregur undanþegin verndaraðgerðum ESB vegna stálframleiðslu
Nýjar verndaraðgerðir Evrópusambandsins vegna stálframleiðslu taka gildi á morgun. Framkvæmdastjórn ESB tilkynnti þessa ákvörðun hér í Brussel í dag, ...
Gistinóttum fjölgaði lítillega í maí
📅 30.06.2026 👁️ 0
Gistinóttum fjölgaði lítillega í maí
Gistinóttum á hótelum fjölgaði um tæpt prósent í maí samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Alls voru gistinætur 432 þúsund á landsvísu í maí en ...
Dræm lax­veiði: 
„Menn spá ekki nema spáin sé góð“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Dræm lax­veiði: „Menn spá ekki nema spáin sé góð“ - Vísir
Vefurinn Angling.is, sem stendur fyrir Landssamband veiðifélaga, birtir vikulega veiðitölur og þar kemur á daginn að hún er á pari við það sem var í f...
Tvö hundruð prósent fleiri til­kynningar um vændi - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Tvö hundruð prósent fleiri til­kynningar um vændi - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá Embætti ríkislögreglustjóra sem birt hefur nýja skýrslu um tilkynnt kynferðisbrot fyrstu þrjá mán...
Um 95 milljónir í Evrópu upplifa 35 stig í dag
📅 30.06.2026 👁️ 1
Um 95 milljónir í Evrópu upplifa 35 stig í dag
Um 95 milljónir Evrópubúa upplifa að minnsta kosti 35 stiga hita í dag, aðallega í austur- og suðurhluta álfunnar. Hitamet féll í Slóvakíu í gær þegar...
Vilhelm Jónsson skrifar: Hundrað ára afmælið varð að bíða – sviðsljósið kallaði
📅 30.06.2026 👁️ 1
Vilhelm Jónsson skrifar: Hundrað ára afmælið varð að bíða – sviðsljósið kallaði
Hundrað ára afmæli Landhelgisgæslunnar átti að vera stór stund. En afmælið varð að víkja. Sviðsljósið kallaði.Varðskipið Þór er loksins komið á siglin...
Sveinn Andri gefur skýrslunum falleinkunn: „Algjör apaköttur“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Sveinn Andri gefur skýrslunum falleinkunn: „Algjör apaköttur“
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður og verjandi Sindra Snæs Birgissonar telur ólíklegt að hryðjuverkamálinu svokallaða verði áfrýjað til Hæstaréttar, hann...
Gagnrýna AI-samninga plötuútgefenda: „Byggt á störfum okkar án samþykkis okkar“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Gagnrýna AI-samninga plötuútgefenda: „Byggt á störfum okkar án samþykkis okkar“
Félag íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og systursamtök þess á Norðurlöndum lýsa yfir alvarlegum áhyggjum vegna vaxandi AI-samstarfs plötuútgefenda við...
Mun fleiri tilkynningar um stafrænt ofbeldi og kynferðislega áreitni
📅 30.06.2026 👁️ 1
Mun fleiri tilkynningar um stafrænt ofbeldi og kynferðislega áreitni
Mun fleiri tilkynningar um stafrænt ofbeldi og kynferðislega áreitni Til­kynn­ing­um um kyn­ferð­is­lega áreitni og sta­f­ræn kyn­ferð­is­brot fjölg­a...
Umskurður á kynfærum stúlkna og kvenna er útbreiddari á Vesturlöndum en margir gera sér grein fyrir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Umskurður á kynfærum stúlkna og kvenna er útbreiddari á Vesturlöndum en margir gera sér grein fyrir
Umskurður á kynfærum stúlkna og kvenna er útbreiddari á Vesturlöndum en margir gera sér grein fyrir Ný rannsókn CSPII 2026 á FGM vekur mikilvægar spur...
Orðið á götunni: Marklaus gagnrýni Lilju – er vandinn ekki bara sá að Framsókn var hafnað í Alþingiskosningum?
„Ætlum að sækja að olíu­fé­laginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
„Ætlum að sækja að olíu­fé­laginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ - Vísir
Þetta kemur fram í harðorðri færslu á samfélagsmiðlinum Instagram. Líkt og fram hefur komið er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsö...
Belfast disorder: Man charged with attempted murder and arson
📅 30.06.2026 👁️ 0
Belfast disorder: Man charged with attempted murder and arson
The 29-year-old was arrested on Monday in connection with a glider bus which was set on fire on 9 June.
Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar
📅 30.06.2026 👁️ 1
Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar
Svavar Pálsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar. Hann tekur við starfinu 1. október næstkomandi. Hann tekur við af Pétri Arasyni, sem hafð...
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar - Vísir
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Þar er rætt við Helgu Þórisdóttur forstjóra Persónuverndar sem staðfestir að málið sé komið til Persónuverndar...
Bandero boðar atlögu að olíufélagi Hvals hf.
📅 30.06.2026 👁️ 1
Bandero boðar atlögu að olíufélagi Hvals hf.
Skip Paul Watson-samtakanna á Íslandsmiðum, Bandero, ætlar að leggja til atlögu við olíufélagið sem þjónustar Hval hf. Þetta tilkynntu samtökin á samf...
Segir gervigreindina ráða eina: „Samfélagsmiðlar munu hætta að vera til“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Segir gervigreindina ráða eina: „Samfélagsmiðlar munu hætta að vera til“
„Við erum í raun ekki skynsemisverur sem byggja á gagnrýninni hugsun. Við viljum vera það, en það gengur illa,“ segir Janis Sarts, forstöðumaður öndve...
Two arrested over death of young man at commercial centre in Puerto Rico, Gran Canaria
📅 30.06.2026 👁️ 1
Two arrested over death of young man at commercial centre in Puerto Rico, Gran Canaria
Two people have been arrested in connection with the death of a young man at a commercial centre in Puerto Rico, in the municipality of Mogán, in the ...
Úkraínskur auð­kýfingur særðist í sprengju­til­ræði í Móna­kó - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Úkraínskur auð­kýfingur særðist í sprengju­til­ræði í Móna­kó - Vísir
Sprengjan sprakk í inngangi byggingarinnar nærri landamærunum að Frakklandi um klukkan níu í gærkvöldi að staðartíma. Tveir fullorðnir og barn særðust...
World Cup 2026: USA security chief Markwayne Mullin 'danced a happy dance' after Iran exit
📅 30.06.2026 👁️ 1
World Cup 2026: USA security chief Markwayne Mullin 'danced a happy dance' after Iran exit
The United States' head of homeland security says he "danced a happy dance" when Iran's elimination from the World Cup was confirmed.
Lýsa yfir þungum á­hyggjum af notkun gervi­greindar við tón­listar­sköpun - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Lýsa yfir þungum á­hyggjum af notkun gervi­greindar við tón­listar­sköpun - Vísir
Þar er bent á að plötuútgefendur hafi farið að leyfa notkun á tónlistarsöfnum sínum í þjálfun gervigreindar og framleiðslu á tilbúnni tónlist, án þess...
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara á borði Persónuverndar
📅 30.06.2026 👁️ 1
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara á borði Persónuverndar
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara er til skoðunar hjá Persónuvernd. Nöfn fimm manna sem sættu sakamálarannsókn og málsnúmer birtust í kynningarmyndb...
Kaldi eða strekkingur á suð­vestan- og vestan­verðu landinu - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Kaldi eða strekkingur á suð­vestan- og vestan­verðu landinu - Vísir
Lægð við suðausturströnd Grænlands sem mjakast til norðausturs beinir hægt vaxandi sunnanátt til landsins, að sögn Veðurstofu Íslands. Hún á að valda ...
Lægðaskil með samfelldri rigningu
📅 30.06.2026 👁️ 1
Lægðaskil með samfelldri rigningu
Lægð við suðausturströnd Grænlands beinir til okkar vaxandi sunnanátt og vætu með köflum. Þegar skil lægðarinnar ganga yfir má búast við samfelldri ri...
Canary Islands Government issues wildfire alert due to extreme heat and weather conditions
📅 30.06.2026 👁️ 1
Canary Islands Government issues wildfire alert due to extreme heat and weather conditions
The Canary Islands Government has activated a forest wildfire alert as the archipelago braces for its first significant heatwave of the year, with soa...
Ýtukarl á átt­ræðis­aldri er enn að bæta vegina - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Ýtukarl á átt­ræðis­aldri er enn að bæta vegina - Vísir
Í hópi tíu karla við vegagerð í Vatnsdal, sem við sögðum frá í kvöldfréttum Sýnar, er aldursforsetinn á stærðarinnar jarðýtu.Hann er úr Landeyjum og s...
Fann ástina og tók sénsinn í New York - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fann ástina og tók sénsinn í New York - Vísir
Klara Sól stofnaði fyrirtækið The Liminal Society og ætlar sér stóra hluti í lífinu. Hún er gift fyrirsætunni og meistaranemanum Chris Petersen og þau...
Comparing Coastlines: Why chasing the sun past Gibraltar offers a completely different holiday vibe
📅 30.06.2026 👁️ 1
Comparing Coastlines: Why chasing the sun past Gibraltar offers a completely different holiday vibe
If you’re choosing between a holiday on Spain’s Atlantic coast and one further round in the Mediterranean, it helps to know they’re not really interch...
Reiðin magnast í Venesúela - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Reiðin magnast í Venesúela - Vísir
Breska ríkisútvarpið ræðir við fjölda Venesúelabúa sem bíða ýmist fregna eða taka þátt í leit af ástvinum sínum sem liggja enn undir rústum bygginga o...
Með kylfur og mikið magn vímu­efna - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Með kylfur og mikið magn vímu­efna - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglu. Þar kemur fram að lögreglu hafi einnig borist tilkynning um þjófnað úr matvöruverslun á stöð 1 s...
Wimbledon 2026: Serena Williams on Maya Joint match and return to tennis
📅 30.06.2026 👁️ 1
Wimbledon 2026: Serena Williams on Maya Joint match and return to tennis
For Serena Williams, everything and nothing has changed on her return to Wimbledon.
Sex látnir eftir skotárás í Þýskalandi – Maður af tyrkneskum uppruna handtekinn
📅 30.06.2026 👁️ 1
Sex látnir eftir skotárás í Þýskalandi – Maður af tyrkneskum uppruna handtekinn
Sex manns létust í skotárás í bænum Stade í norðurhluta Þýskalands á mánudag. Fimm létust á vettvangi en sjötti einstaklingurinn lést síðar á sjúkrahú...
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson - Vísir
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag þar sem rætt er við Kristján. Líkt og kunnugt er er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsögu o...
TUESDAY WEATHER: Canary Islands face warnings for 40°C heat, calima and some strong winds
📅 30.06.2026 👁️ 1
TUESDAY WEATHER: Canary Islands face warnings for 40°C heat, calima and some strong winds
The Canary Islands are set for another day of intense summer weather today, Tuesday, with temperatures forecast to climb to 40°C in some areas, accomp...
Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi
Um miðjan júní var sagt frá því í fréttatilkynningu að Bláa lónið og ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Adventures ætluðu sér að sameinast. Ef af þessum s...
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
📅 30.06.2026 👁️ 1
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum Nátt­úru­fræði­stofn­un tel­ur drög um­hverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­...
Rúmlega 400 drónum grandað yfir Rússlandi í nótt
📅 30.06.2026 👁️ 1
Rúmlega 400 drónum grandað yfir Rússlandi í nótt
Rússar skutu niður 419 úkraínska dróna í nótt. Frá þessu greinir rússneska varnarmálaráðuneytið.Aukinn kraftur hefur færst í árásir Úkraínumanna með l...
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
Hæstiréttur Bandaríkjanna neitaði með fimm atkvæðum gegn fjórum að leyfa Donald Trump að reka Lisu Cook úr bankaráði bandaríska seðlabankans. Hæstirét...
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
📅 30.06.2026 👁️ 2
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
The pupil's experience in a Yorkshire school highlights concerns about zero-tolerance behaviour policies.
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
📅 30.06.2026 👁️ 1
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
People in areas devastated by twin earthquakes say they need more support from the government.
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
📅 30.06.2026 👁️ 1
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
Kínverski milljarðamæringurinn Guo Wengui var í gær dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum. Í júlí 2024 var hann sakfelldur fyrir fjársvik, fjárkúgu...
World Cup 2026: Julian Nagelsmann faces pressure as Germany bow out
📅 30.06.2026 👁️ 1
World Cup 2026: Julian Nagelsmann faces pressure as Germany bow out
Germany make a shock last-32 exit against Paraguay, losing a World Cup penalty shootout for the first time to pile pressure on boss Julian Nagelsmann.
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
📅 30.06.2026 👁️ 1
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
Þrír særðust, þar á meðal táningur, eftir að sprengja sprakk í íbúðarhúsnæði í Mónakó í kvöld.Heimildarmaður AFP segir einn hinna særðu vera Vadym Yer...