Gerðu Bretar rétt í að ganga úr ESB

Jón Magnússon skrifar:
Áróðursmiðlar og sporgöngufólk ESB heldur fram, að það hafi verið mistök hjá Bretum að ganga úr ESB, þeir hafi tapað miklu og efnahagurinn versnað mikið miðað við helstu ESB ríki.
Því fer fjarri að þetta sé raunsönn lýsing og um það skrifar Robert Tombs fyrrv. prófessor í Cambridge athyglisverða grein í DT þ.11. ágúst þar sem hann bendir á hve mikið gæfuspor það hafi verið fyrir Breta að ganga úr ESB.
Tombs segir að ákveðin hópur hagfræðinga hafi allt frá því að Bretar gengu úr ESB haldið því fram að efnahagslega hafi Bretar tapað á því að ganga úr ESB hlutfallslega miðað við helstu ríki ESB. Staðreyndin sé hinsvegar sú,að Frakkland hafi tapað 7% af sinni þjóðarframleiðslu og Þýskaland 12% en Bretland 4%. Tombs segir "Þegar við vorum í ESB var vöruskiptajöfnuðurin við ESB ríkin neikvæður. Hann mundi verða enn neikvæðari núna,þar sem helstu útflutningsvörur okkar eins og olía, gas og íhlutir í flugvélar o.fl. eru allt vörur sem mega þola refsitolla og erfiðleika vegna kolefnahlutleysis."
Þá segir hann rangt sem stuðningsfólk ESB aðildar haldi fram, að Brexit hafi ekki haft nein jákvæð áhrif fyrir Bretland og bendir á að alla vega hafi Bretar sparað mikla fjármuni með því að losna við að borga þúsundir milljóna punda til ESB án þess að fá nokkuð viðlíka á móti.
"Við borguðum þúsundir milljóna fyrir þau vafasömu forréttindi að hafa aðgang að sameiginlega markaðinum. Síðasta árið sem við vorum í ESB þá greiddum við um 10% af heildarútgjöldum ríkisins jafnvel þó það sé dregið frá sem við fengum frá ESB.
Með gildum rökum og tölfræðilegum gögnum sýnir prófessor Tombs að það hafi verið illa af stað farið að ganga í ESB. Það að losna úr faðmlagi ESB hafi verið erfitt og allt gert til að koma í veg fyrir það, en hagsmunir Breta hafi verið þeir að losna úr því faðmlagi.
Það er stundum dýrt að kíkja í pakka.