„Aðstæður hafa verið einstaklega erfiðar núna eins og sést bara á því hvernig fór í Reynisfjöru,“ segir G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar, í samtali við blaðamann Vísis.
„Við búum á Íslandi í opnu Atlantshafi og að halda höfn opinni á sandströnd er ekki auðvelt,“ bætir hann við en segir að dýpkun hafi gengið vel í morgun.
„Við erum að dýpka og það gekk mjög vel að dýpka á flóðinu í morgun,“ segir Pétur og bætir við að útlitið næstu daga sé gott. Það verði vonandi hægt að sigla á milli Eyja og Landeyjarhafnar innan fárra daga en hann vilji ekki lofa neinu.
„Við vorum búin að dýpka í síðustu viku og svo varð aldan erfið og það kom mjög mikill sandur þannig að dýpkunin sem var búin að vinnast fylltist aftur, aðstæður eru mjög krefjandi,“ segir hann og að þetta sé svona eitt skref áfram, tvö afturábak verkefni.
Erlent fyrirtæki tekur við
Belgíska fyrirtækið Jan De Nul tekur við dýpkunarframkvæmdum í haust en verkinu var úthlutað eftir útboð Vegagerðarinnar.
„Við eigum eftir að sjá hvernig Jan De Nul gengur að dýpka næsta vetur, við erum með samning til þriggja ára, en það er ekkert hvaða skip sem er getur dýpkað í mynni Landeyjarhafnar,“ segir Pétur og nefnir að áður hafi verið fengnir erlendir aðilar í dýpkun en þetta sé erfiðara á Íslandi en víða annars staðar.