Sex ungir karlar hafa verið sýknaðir af ákæru um hættulega líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll í Kópavogi september 2021.
Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í lok júlí en hefur nú verið birtur.
Árásin átti að hafa orðið í samkvæmi þar sem ungmenni voru saman komin. Þeir sem voru ákærðir voru þá 16 til 19 ára. Einn þeirra er Gabríel Douane Boama, sem hlotið hefur dóma fyrir ofbeldisbrot. Brotaþolar voru 17 og 18 ára.
Í ákæru var mönnunum gefið að sök að hafa ruðst inn í íbúð og veist að fjórum öðrum sem þar voru staddir, slegið þá og veist að þeim með vopnum. Þá voru þeir sagðir hafa valdið tjóni á húsnæðinu.
Einn brotaþoli sagði í frumskýrslu að einn þeirra ákærðu hefði verið til ama og leiðinda í partíinu. Átök hefðu brotist út þegar reynt var að koma honum út úr húsinu og hann meðal annars verið kýldur. Stuttu síðar hefði hann komið ásamt fjórum til fimm öðrum og þeir ruðst inn.
Allir neituðu þeir sök og sem fyrr segir voru þeir sýknaðir.
Að mati dómsins þótti ekki hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærðu hefðu verið þeir sem réðust inn í íbúðina. Ákæruvaldinu hafi ekki tekist að sanna sekt þeirra ákærðu í málinu. Í því samhengi er vísað til ónákvæms og misvísandi framburðar vitna af vettvangi og annmarka á rannsókn málsins.
Misvísandi framburður vitna og annmarkar á rannsókn
Vitnum bar ekki saman um hve margir hefðu komið á vettvang né í hve mörgum bifreiðum. Þá bar þeim heldur ekki saman um hverjir þeir hefðu verið.
Dómurinn gagnrýndi að lögreglan hefði ekki rannsakað þætti málsins sem fullt tilefni var til að skoða betur. Hún hefði ekki gengið úr skugga um að upptaka hefði verið til af atburðinum. Tvö vitni sögðu að slík upptaka hefði verið til.
Hefði hún fundist hefði upptaka getað leitt í ljós að gerendur í málinu hefðu verið aðrir en þeir sem voru ákærðir, þótt ekki sé hægt að slá neinu á föstu um það.
Þá segir dómurinn að ákæruvaldinu beri að hraða meðferð máls eftir því sem kostur er. „Að mati dómsins hefur þessa ekki verið gætt við rannsókn þessa máls með fullnægjandi hætti.“