Nýtt miðlægt atvikaskráningarkerfi fyrir ferðaþjónustu á Íslandi til að bæta öryggi ferðamanna, kortleggja slys og styðja við forvarnir var kynnt af Ferðamálastofu í dag. Atvinnuvegaráðherra segir kerfið byltingarkennt.
Kerfið verður rekið af Ferðamálastofu og mun taka við tilkynningum frá ferðaþjónustufyrirtækjum, ferðamönnum og öðrum hagaðilum. Markmið atvikavaktarinnar er að læra af reynslunni. Hún sýni að flest alvarleg slys eigi sér undanfara.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir tilkomu kerfisins marka tímamót í ferðaþjónustunni. Fjölgun ferðamanna hafi haft ýmsar áskoranir í för með sér.
Bylting í gagnasöfnun
Hún segir ferðamálastefnu sem var samþykkt árið 2024 hafa leitt af sér skipan starfshóps um bætt öryggi ferðamanna og á sama tíma hafi verið skipaður ráðuneytisstjórahópur um jöklaferðir eftir banaslys sem varð á Breiðamerkurjökli. Báðir hóparnir hafi komist að þeirri niðurstöðu að stofna þyrfti miðlægt skráningarkerfi.
„Þetta er auðvitað fyrsta skrefið í þeirri vegferð okkar að fara að huga af alvöru að því hvernig við tryggjum öryggi ferðamanna og þeirra sem starfa í þessari stóru atvinnugrein sem best.“
Kerfið eigi sér fyrirmyndir í atvikaskráningakerfi sjómanna og hjá fyrirtækjum og sveitarfélögum. Hanna Katrín segist afar stolt af framtakinu.
„Ég heyri það að þetta er bylting í gagnasöfnun fyrir þessa atvinnugrein, ekki endilega bara hér á landi heldur svona almennt. Þannig að við erum mjög ánægð með þetta risaskref.“