Klaus Schwab, stofnandi World Economic Forum (WEF), hefur lagt fram kæru til saksóknara í Genf eftir að hlustunarbúnaður fannst á skrifstofu hans við reglubundna öryggisúttekt.
Samkvæmt talsmanni Schwabs fannst búnaðurinn á heimili hans skammt frá höfuðstöðvum WEF í Genf. Kæran beinist að óþekktum aðilum og rannsókn málsins er nú í höndum svissneskra yfirvalda.
Ekki hefur verið upplýst hver kunni að hafa komið búnaðinum fyrir né hvort hann hafi verið virkur þegar hann fannst.
Málið hefur vakið athygli vegna ummæla sem Schwab hefur sjálfur látið falla um friðhelgi einkalífs á undanförnum árum.
Í viðtali sem vakti mikla umræðu sagði hann að fólk þyrfti að venjast því að friðhelgi einkalífsins myndi minnka með aukinni tækniþróun. Þar sagði hann jafnframt:
„Ef þú hefur ekkert að fela, þarftu ekkert að óttast.“
En svo virðist sem Kláus karlinn sé ekki hrifinn af því að láta fylgjast með sér.
🚨 WEF founder Klaus Schwab says people will have to “get used to” losing privacy.
“If you have nothing to hide, you shouldn’t be afraid.”
This is a dangerous mindset that normalizes mass surveillance.pic.twitter.com/ed6GdPAhbt
— Global Dissident (@GlobalDiss) May 15, 2026