Fyrrverandi kokkur hjá Vietnam Restaurant, sem var í eigu athafnamannsins Quang Lé, hafði betur gegn þrotabúi veitingastaðarins í Landsrétti í vikunni.
Úrskurðað var að starfsmaðurinn ætti forgangskröfu um 19,9 milljónir fyrir vangoldin laun og orlof í þrotabúið, þar af rétt rúmar 14 milljónir fyrir ógreidda yfirvinnu.
Starfsmaðurinn starfaði hjá Vietnam Restaurant frá því sumarið 2022 og þangað til í mars 2024 þegar honum var lokað í tengslum við lögregluaðgerðir vegna rannsóknar á Quang Lé og fyrirtækjum hans. Hann er grunaður um mansal og skipulagða glæpastarfsemi.
Veitingastaðurinn var tekinn til gjaldþrotaskipta í september 2024.
Deildu um yfirvinnuna
Þrotabúið hafði samþykkt kröfu starfsmannsins um 4,4 milljónir í vangoldin dagvinnulaun en ágreiningur stóð um greiðslu fyrir ógreidda yfirvinnu. Sú krafa byggði á því að maðurinn hefði unnið miklu meira en hann hefði fengið greitt fyrir, eða að jafnaði í tólf tíma á dag sex daga vikunnar.
Aðrir fyrrverandi starfsmenn staðarins báru vitni fyrir héraðsdómi um að þeir hefðu einnig unnið í tólf tíma, sex daga vikunnar.
Landsréttur féllst á það að starfsmaðurinn fengi forgangskröfu í þrotabúið fyrir yfirvinnu sína.
Fékk ekki samþykktar kröfur fyrir dvalarleyfisgreiðslur
Starfsmaðurinn gerði einnig kröfu um tæplega tvær milljónir vegna þess sem hann sagði vera ólögmætan frádrátt á launum. Hann hélt því fram að honum hefði verið gert að greiða hluta launa sinna í svokallaðar greiðslur fyrir dvalarleyfi til fyrirsvarsmanns veitingastaðarins um hver mánaðarmót.
Dómurinn féllst ekki á að þrotabúinu bæri að endurgreiða manninum þetta. Ekki þótti sannað að með greiðslunum hefði stofnast krafa á hendur þrotabúinu. Fjárhæðin hefði ekki verið afhent veitingastaðnum sjálfum auk þess sem ekki nægilegar sönnur væru fyrir þeim.
Samkvæmt fréttatilkynningu Eflingar bíða á fjórða tug annarra starfsmanna úrlausnar sinna mála.