Fyrrverandi belgíski knattspyrnumaðurinn Karel Snoeckx liggur á gjörgæslu í framkölluðu dái eftir grimmilega árás sem átti sér stað í belgísku borginni Turnhout á laugardag. Karlmaður hefur verið handtekinn og er grunaður um tilraun til manndráps.
Snoeckx, sem er 52 ára, varð belgískur meistari með Lierse SK árið 1997 og lék einnig einn A-landsleik fyrir Belgíu. Eftir knattspyrnuferilinn sneri Snoeckx sér að rekstri hundahótels og hundaræktar ásamt eiginkonu sinni.
Samkvæmt belgískum fjölmiðlum hófst atvikið þegar orðaskipti brutust út milli fjölskyldu Snoeckx og tveggja gangandi vegfarenda við gatnamót í Turnhout. Deilan þróaðist fljótt yfir í líkamleg átök.
Ítrekuð spörk í höfuð þar sem Karel lá varnarlaus
Eiginkona Karel Snoeckx, Lindsy Leppens, segir að eiginmaður hennar hafi stigið út úr bílnum til að spyrja hvers vegna fólkið brást svona við. Hún segir að maðurinn hafi þá slegið Snoeckx í andlitið, tekið hann hálstaki og fellt hann í jörðina. Að hennar sögn hélt árásin áfram eftir að hann lá varnarlaus og að sparkað hafi verið í höfuð hans ítrekað. Hún segir jafnframt að konan sem var með hinum grunaða hafi einnig tekið þátt í barsmíðunum.
Þegar sjúkraflutningamenn komu á vettvang var Snoeckx meðvitundarlaus. Eiginkona hans og tengdasonur, sem starfar sem hjúkrunarfræðingur, hófu endurlífgun áður en sjúkraflutningamenn tóku við. Hann var síðan fluttur á sjúkrahús þar sem hann var settur í framkallað dá vegna alvarlegra áverka. Samkvæmt fjölskyldunni eru rifbein og bringubein einnig brotin.
Belgíska saksóknaraembættið hefur staðfest að 35 ára karlmaður hafi verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald, grunaður um tilraun til manndráps. Kona sem einnig var handtekin var síðar látin laus með skilyrðum en er áfram grunuð um líkamsárás. Rannsókn málsins stendur enn yfir.
BREAKING:
The Belgian fmr professional footballer Karel Snoeckx is fighting for his life in hospital after having been repeatedly stomped on the head by a migrant who accused him of racism.
Karel won the Belgian league with Lierse SK in 1997 and also played for the Belgian… pic.twitter.com/Eyx0LrJ4f4
— Visegrád 24 (@visegrad24) July 6, 2026
Ekki staðfest hver hinn grunaði er
Á samfélagsmiðlum hafa gengið ýmsar fullyrðingar um uppruna hins handtekna og ástæður deilunnar. Nútíminn hefur farið yfir belgískar heimildir en hvorki lögregla né saksóknaraembættið hafa birt nafn hans, þjóðerni eða upplýsingar um uppruna.