Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað Pete Hegseth varnarmálaráðherra að skera niður í sameiginlegri heræfingu Bandaríkjanna og Suður-Kóreu. Bandaríkjaforseti tilkynnti um þessa ákvörðun í færslu á Truth Social í kvöld.
Hann segir að þar sem samband hans og Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu, sé gott sé hann ekki ánægður með að Bandaríkin hafi fyrir löngu fallist á að taka þátt í sameiginlegri heræfingu með Suður-Kóreu.
Þessar heræfingar séu ekki aðeins kostnaðarsamar, heldur sendi þær skilaboð sem séu óviðeigandi og óvinveitt til lands sem í forsetatíð hans hafi ekki verið með hótanir og sýnt virðingu.
Bandaríkjaforseti segir að of seint sé að hætta við æfinguna og því hafi hann fyrirskipað Hegseth að minnka umfang hennar. Þá sagði Trump að hann hefði nýverið spurt forseta Suður-Kóreu hvort Suður-Kórea væri til taka þátt í að afkjarnorkuvopnavæða Írana með Bandaríkjunum, en því hafi verið hafnað.
Æfingin samkvæmt áætlun
Varnarmálaráðuneyti Suður-Kóreu segir að æfingarnar séu hafnar og þær fari fram samkvæmt áætlun. Heræfingin, Frelsisskjöldur Ulchi, er árleg heræfing Bandaríkjanna og Suður-Kóreu og stendur í ellefu daga.
Yfirvöld í Norður-Kóreu eru ósátt við æfingarnar og segja þær undirbúning fyrir innrás. Um 28.500 bandarískir hermenn eru útsendir í Suður-Kóreu.