Tæplega þriðjungur Íslendinga nýtir sér ólöglegt streymi og niðurhal samkvæmt könnun sem Frísk, félag rétthafa í sjónvarpi og kvikmyndum, lét gera. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag.Þar er rætt við Fróða Steingrímsson, stjórnarformann Frísk, sem segir hlutfallið mun hærra hér á landi en í samanburðarlöndum á borð við Danmörku, Svíþjóð og Finnland.
Fróði lýsir áhyggjum: „Þetta hefur komið í ljós hjá mörgum á Íslandi“