Vísindamenn NASA segja almyrkva sólar einstakt tækifæri til að rannsaka áhrif sólar á jörðu. Tugir þeirra eru hér á landi og nota ýmis tæki við rannsóknir sínar.
Um fjörutíu vísindamenn bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA komu hingað til lands til að rannsaka áhrif almyrkva á sólu á andrúmsloft jarðar og ýmislegt annað. Það verður rannsakað með loftbelgjum og sérútbúinni flugvél.
Vélin sú flýgur í 50.000 feta hæð og þess verður freistað að fljúga með skugga tunglsins og safna gögnum sem nýtast við rannsóknir.
„Sólmyrkvinn eltir okkur“
„Þetta er merkilegur atburður,“ segir Tom Parent, einn þeirra sem fljúga rannsóknarflugvélum NASA. „Það verður þannig að sólmyrkvinn eltir okkur, við fljúgum vélinni á undan myrkvanum.“
Og með því að fara á 740 kílómetra hraða á klukkustund og með skugga tunglsins frá norðri til suðurs tekst að lengja þann tíma sem vélin verður í almyrkvanum. „Ef vélin verður í stöðu tímanlega, þá fáum við 3-4 mínútur af almyrkva.“ segir Parent.
Langir vængir fljúga hærra
Vængir vélarinnar eru óvenjulangir til að geta flogið hærra, hún tekur á loft frá Keflavík skömmu fyrir almyrkva, flýgur í átt að Grænlandi og snýr við undan vesturströnd landsins. Og þessi vél er ekkert unglamb, segir Parent sem segir hana hafa verið smíðaða á árunum 1953–54.
Gömul flugvél – ný tækni
En þrátt fyrir nokkuð háan aldur, af flugvél að vera, er hún búin nýjustu tækni – meðal annars nokkurs konar myndgreiningarkerfi sem NASA þróaði. Það er í nefi vélarinnar og nemur ýmsar bylgjulengdir.
Og gögnin eru svo send vísindamönnum NASA sem meðal annars mæla kórónu sólar, ysta lag lofthjúps hennar.
„Það gerir okkur kleift að reyna að skilja af hverju ytri hluti kórónunnar er miklu heitari en yfirborðið,“ segir CJ Scott sem er sviðsstjóri rannsókna hjá NASA.
Munum við vita miklu meira um sólina eftir þennan atburð?
„Já, ég held að við gerum það.“
Einstakt tækifæri til rannsókna
CJ segir almyrkva einstakt tækifæri til rannsókna enda gerir NASA fleiri slíkar hér á landi þessa dagana og sleppir 80 loftbelgjum fyrir og eftir almyrkvann til að rannsaka áhrif hans á andrúmsloft jarðar.
Spurður hvernig þær upplýsingar sem rannsóknirnar veita nýtist almenningi segir hann það vera á ýmsan hátt.
„Þekking á sólinni hjálpar okkur að skilja hvernig samspil hennar og jarðar er. Hvernig massi flyst frá sólinni til sólkerfisins og þar kemur við sögu veðurfarið á sólinni. Gervitungl og annað slíkt verða fyrir áhrifum af veðrinu á sólinni.“