Í tilkynningu frá Framsóknarflokknum og óháðum á Ísafirði segir að Kristján Þór Kristjánsson og Gylfi Ólafsson oddvitar framboðanna búist við því að viðræður standi fram yfir helgi.
Í sveitarstjórnarkosningunum 2022 náði Í-listinn hreinum meirihluta, en einn bæjarfulltrúi hans, Þorbjörn H. Jóhannesson, sagði skilið við meirihlutann árið 2025. Í-listinn var sameiginlegt framboð Samfylkingar, Vinstri grænna, Viðreisnar og óháðra. Í-listinn bauð ekki fram í ár en oddviti framboðsins, Gylfi Ólafsson, bauð í stað þess fram fyrir Viðreisn.
Níu fulltrúar eru í bæjarstjórn.
Atkvæðin dreifðust þannig:
- B-listi - Framsóknarflokkurinn og óháðir: 34,3% með 4 fulltrúa
- C listi - Viðreisn: 16% með 1 fulltrúa
- D-listi - Sjálfstæðisflokkurinn: 25,6% með 2 fulltrúa
- M-listi - Miðflokkurinn: 4,5% með 0 fulltrúa
- S-listi – Samfylkingin: 19,6% með 2 fulltrúa