Um var að ræða fyrsta fyrirlestur vetrarins hjá Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, Stóra breytingin, þar sem fjallað var um breytingar og framtíðina. Spurningarnar voru meðal annars: Hvaða breytingar eru í vændum og hvernig getum við undirbúið okkur sem best fyrir það sem tekur við?
Christian Bason, Ph.D, sérfræðingur, rithöfundur og fyrirlesari sem er þekktur fyrir frumkvöðlastarf á sviði nýsköpunar og hönnunar, steig á stokk og sömuleiðis Bergur Ebbi Benediktsson, framtíðarfræðingur og rithöfundur, sem hefur um árabil fjallað um áhrif tæknibreytinga, tíðaranda og breyttra samfélagsgilda á líf okkar og sjálfsmynd.
Í kjölfarið hófust umræður um framtíðina sem Christian og Bergur Ebbi tóku þátt í ásamt Selmu Rut Þorsteinsdóttur, yfirsköpunarstjóra hjá auglýsingastofunni Pipar og formanni Sambands íslenskra auglýsingastofa, og Halldóru Vífilsdóttur, arkitekt og framkvæmdastjóra Nordic Office of Architecture. Bergur Finnbogason, sköpunarstjóri hjá Fenris Creation, leiddi umræðurnar.
Christian Bason er danskur stjórnmálafræðingur og hönnunarhugsuður sem er þekktur fyrir frumkvöðlastarf í nýsköpun og hönnun innan opinbera geirans og í atvinnulífi, fyrst sem stjórnandi MindLab og síðar forstjóri Danish Design Center. Hann hefur um árabil starfað á alþjóðavettvangi við hönnun, nýsköpun, leiðtogastarf og umbreytingar í samfélaginu.
Í dag er Bason meðstofnandi Transition Collective auk þess að vera vinsæll fyrirlesari og ráðgjafi um sjálfbærar umbreytingar, leiðtogahæfni og opinbera nýsköpun. Hann er höfundur og meðhöfundur fjölmargra bóka og er með doktorsgráðu frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn.
Hér má sjá vel valdar myndir frá morgungleðinni: