Foreldrar í Vesturbæjarskóla biðjast undan hinseginfræðslu

Foreldrar í Vesturbæjarskóla biðjast undan hinseginfræðslu

Foreldrar í Vesturbæjarskóla biðjast undan hinseginfræðslu

Fjölbreytileikinn getur ekki verið einstefna, segja foreldrar barns í 4. bekk í Vesturbæjarskóli. Þau telja að kennsla um kynvitund og það að sumir upplifi sig í röngum líkama samrýmist ekki þeirra lífsskoðunum og vilja ekki að barnið þeirra taki þátt í slíkri fræðslu.

Í samtali við Nútímann segir faðir barnsins að foreldrarnir hafi farið fram á undanþágu frá kennslustundum þar sem notast er við efni frá Samtökunum ’78. Eftir árangurslausan fund með skólastjórnendum hafi þau sent formlegt erindi til Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.


„Við förum aðeins fram á að tekið sé tillit til sannfæringar okkar og lífsskoðana og að barnið okkar sé ekki látið sitja undir fræðslu er stríðir gegn velferð fjölskyldunnar,“ segir faðirinn.

Foreldrar segja beiðni um undanþágu hafa verið hafnað

Samtal foreldranna við skólastjórnendur um undanþágu barnsins frá viðkomandi kennsluefni skilaði ekki niðurstöðu að þeirra sögn. Faðirinn segir að á fundinum hafi verið vikið að mögulegri aðkomu barnaverndaryfirvalda.

„Við vorum spurð hvort barnaverndarnefnd ætti ekki að skoða málið. Ég sagði þeim að það væri velkomið að senda á okkur barnaverndarnefnd. Við hjónin eigum tvö börn og lifum eðlilegu fjölskyldulífi. En það væri ekki víst að skólinn kæmi vel út í fjölmiðlaumræðu ef barnaverndarnefnd væri sigað á okkur fyrir að biðjast undan hinseginfræðslu,“ segir hann.

 Vísa til laga og mannréttinda – barn tekið úr skóla

Í erindi hjónanna til Skóla- og frístundasviðs fara þau fram á að barnið verði undanskilið fræðslu „í tilteknum kennsluþáttum sem falla undir jafnréttis- og lífsleiknikennslu“. Þau vísa meðal annars til stjórnarskrárvarins réttar til að fylgja trú sinni og sannfæringu, laga um grunnskóla um samstarf heimilis og skóla, og ákvæða Mannréttindasáttmála Evrópu um rétt foreldra til að tryggja að menntun barna samræmist lífsskoðunum þeirra.

„Ég átta mig á að við erum eins og skræpóttir fuglar hér í Vesturbænum að biðjast undan fræðslu um hinsegin málefni. En við bökkum ekki með það sem er satt og rétt,“ segir faðirinn.

Á meðan óvíst er hvort erindi foreldranna verður tekið til greina hafa þau ákveðið að taka barnið tímabundið úr skóla.

„Það er lítið eftir af skólaárinu,“ segir móðirin. „Við erum með barnið okkar í heimakennslu, fylgjumst með hvað sett er fyrir og sjáum til þess að barnið læri heima.“


læk

#biðjast #foreldrar #hinseginfræðslu #undan #vesturbæjarskóla


Upprunaleg slóð:
https://www.nutiminn.is/forsida/foreldrar-i-vesturbaejarskola-bidjast-undan-hinseginfraedslu/

Fatal error: Uncaught Error: Call to undefined function getRecentArticles() in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php:260 Stack trace: #0 /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php(36): showArticlePage() #1 {main} thrown in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php on line 260