Er um að ræða fimm herbergja eign í hjarta gamla Vesturbæjar í póstnúmerinu 101. Stórir gluggar hleypa mikilli birtu inn í aðalrýmið og elegant baðkar einkennir baðherbergið. Sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni.
Elín er fædd árið 1979 og hefur farðað ótal margar stjörnur hérlendis og erlendis. Hún hefur meðal annars farðað fyrirsætur fyrir myndaþætti sem hafa birst hjá tískurisum á borð við tímaritið Vogue og Glamour og sömuleiðis fjölda sjónvarpsstjarna hér heima.
Hér má nálgast nánari upplýsingar um fasteignina.