Brotaþoli í Reykholtsmálinu krefst 10 milljóna króna miskabóta frá sakborningum í Reykholtsmálinu svokallaða. Til viðbótar fer maðurinn fram á rúmlega 4,1 milljón í skaðabætur, auk vaxta og dráttarvaxta, frá fjórum sakborningum.
Skaðabótakrafan er gerð vegna eftirstöðva af því fé sem sakborningarnir millifærðu af reikningum hans, að frádregnu því fé sem lögreglu tókst að endurheimta og skila til brotaþola.
Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi í því skyni að hafa af honum fé í apríl 2024.
Þau höfðu af honum tæplega 17,7 milljónir króna. Lögregla náði að endurheimta rúmlega 13,5 milljónir.
„Lengsta frelsissvipting í íslenskri réttarsögu“
Réttargæslumaður mannsins sagði í málsvörn sinni fyrir Héraðsdómi Suðurlands í dag að málið væri „fordæmalaust“ og því ætti fjárhæð miskabóta að vera það líka. Í dómafordæmum væru frelsissviptingar taldar í klukkustundum en í þessu máli væri um rúma þrjá sólarhringa að ræða.
„Þetta er lengsta frelsissvipting í íslenskri réttarsögu. Alvarleikann skal meta í því samhengi,“ sagði réttargæslumaðurinn.
Brotaþolinn væri enn að vinna úr andlegum afleiðingum árásarinnar, hann hefði enn ekki náð sér að fullu líkamlega og að enn vantaði í hann fjölda tanna.
Talið er að málflutningi verjenda ljúki á morgun og að dómur verði kveðinn upp eftir fjórar til átta vikur.