Bráðaþjónusta Landspítalans verður efld með nýrri deild og tuttugu nýjum rýmum. Heilbrigðisráðherra og forstjóri spítalans segja þetta létta talsvert á bráðamóttökunni.
Deildin verður tekin í notkun í lok mánaðar og er í gámeiningum við hlið bráðamóttökunnar í Fossvogi. Alma Möller heilbrigðisráðherra afhenti lyklana að deildinni í morgun og sagði lengi hafa verið þröngt á bráðamóttökunni í húsnæði sem væri barn síns tíma.
Sjúklingum hafi fjölgað og erfitt reynst að útskrifa fólk af bráðamóttökunni og á viðeigandi deildir.
600 millljón króna plástur á húsnæðisvanda spítalans
„Þetta er mjög ánægjulegt. Bæði að fá þetta húsnæði en sömuleiðis er verið að breyta allri bráðaþjónustu og hér verður deild þar sem fólk getur legið allt að þrjá sólarhringa og fengið hraðar greiningar og meðferð,“ sagði Alma að afhendingu lyklanna lokinni.
Hún segir byggingu deildarinnar hafa kostað 600 milljónir. Deildin sé mönnuð eftir hennar bestu vitund og mönnun á spítalanum vænkast heilt yfir á undanförnum misserum.
Þannig þú myndir ekki segja að þetta sé plástur á húsnæðisvanda spítalans á meðan beðið er eftir nýju byggingunni?
„Jú, ég bara segi það. Það er alveg ljóst að við erum áratugum of sein að byggja nýjan spítala og þess vegna hefur þurft ýmsar bráðabirgðalausnir.“
Tilfelli þar sem fólk sofi á göngum muni fækka
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans segir deildina kærkomna viðbót við spítalann. Mikil örtröð sé á bráðamóttökunni öllu jafna vegna skorts á hjúkrunarrýmum.
Opnun deildarinnar styðji við endurskipulagningu á bráðaþjónustu spítalans sem lengi hafi verið unnið að en ekki verið aðstaða fyrir. Fyrir liggi að eftirspurn eftir þjónustu aukist jafnt og þétt í framtíðinni.
Runólfur gerir ráð fyrir því að biðtími þeirra sem leiti á bráðamóttöku styttist eitthvað með tilkomu deildarinnar. Hann geti þó ekki fullyrt að fólk þurfi ekki að sofa á göngum spítalans framar.
„Ég get ekki sagt að það muni hverfa alveg. Ef við horfum til annarra landa þá kemur það alveg fyrir. En það mun svo sannarlega minnka.“
Hann segir núverandi aðstöðu bráðamóttökunnar með öllu ófullnægjandi enda hafi hún verið tekin í notkun til bráðabirgða fyrir áratugum.
„Þegar við flytjum í nýju mannvirkin á Hringbraut í meðferðarkjarnann. Þar verður náttúrulega gríðarlega umfangsmikil og góð aðstaða fyrir bráðamóttöku og aðra bráðaþjónustu. Þannig við horfum kannski á þetta sem úrræði þangað til.“