Einn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspítalans eftir slys í tengivirki við Vatnshamra í Borgarfirði í dag. Ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan hans eða hvernig slysið varð.
Rafmagn fór af Borgarnesi og svæðinu sem fær rafmagn frá Vatnshömrum þegar tveir spennar í tengivirkinu leystu út klukkan 13:33, samkvæmt tilkynningu Landsnets. Spennarnir voru komnir aftur í rekstur klukkan 14:54, rúmri klukkustund síðar.