Karlmaður sem slasaðist í vinnuslysi í nágrenni við Hellu var fluttur á sjúkrahús með þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi, segist ætla að maðurinn sé kominn á sjúkrahús. Lögreglu barst útkallið upp úr klukkan ellefu og lögregla, sjúkraflutningamenn og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar fóru á vettvang.
Einar segist ekki vita hve alvarlegir áverkar mannsins séu.