Það var sumarfiðringur í fólki þegar ECIT á Íslandi bauð til vorfagnaðar. Teitið fór fram í nýjum húsakynnum félagsins í Turninum við Smáratorg. Á dögunum voru skrifstofur félagsins sameinaðar á einum stað í Kópavogi en félagið rekur þó 12 skrifstofur á landsbyggðinni. Hjá félaginu starfa yfir 110 sérfræðingar í bókhaldi, við launavinnslu og ráðgjöf.
Það voru allir frekar kátir í boðinu en þangað mættu starfsfólk, viðskiptavinir og samstarfsaðilar. Boðið var upp á ljúffengar veitingar í fljótandi og föstu formi.
Ellert Hreinsson og Rebekka Pétursdóttir
Rebekka arkitekt hjá Former var yfirhönnuður húsnæðis ECIT í Turninum sem þykir hafa tekist mjög vel í alla staði.
mbl.is/Eyþór
Sæmundur Gunnarsson sérfræðingur hjá ECIT í Noregi og Rune Norbakk stjórnarformaður ECIT á Íslandi.
mbl.is/Eyþór


















